Fasteignaleitin
Skráð 29. okt. 2026

Skólabraut 23

EinbýlishúsVesturland/Akranes-300
158 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
493.038 kr./m2
Brunabótamat
70.750.000 kr.
Byggt 1930
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
21019897
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

***SKÓLABRAUT 23 - AKRANESI***

Prima fasteignasala og Ólafur Sævarsson lögg.fasteignasali kynna: Mjög svo fallegt og endurnýjað 5 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum
. Skólabraut 23, einbýlishús 158m² Íbúð í kjallara 82,2m² Einbýlishús 75,8 m² samkvæmt skráningu HMS.

Lýsing eignar: Rúmgóð forstofa með góðrilofthæða, alrými með eldhúsi og stofu, fjögur herbergi, sjónvarpsrými, hol, forstofa, anddyri, baðherbergi, salerni, þvottahús, geymsla og háaloft.

Forstofa: á jarðhæð þaðan sem gengið er niður á neðri hæð og upp á efri hæð, flísar á gólfi.
Skipulag efri hæðar: alrými með eldhúsi og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi.
Alrými með eldhúsi og stofu. Lúga upp á háaloft yfir eldhúsi.
Eldhús: nýleg L-laga, brún eldhúsinnrétting, borðplata úr bakteríudrepandi plasti. Spanhelluborð með gufugleypi, ofn í vinnuhæð, tækjaskápur, innbyggð uppþvottavél og gert ráð fyrir ísskáp í innréttingu, flotað gólf.
Herbergi: hjónaherbergi, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi: einfaldur fataskápur.
Baðherbergi: með góðri innréttingu og baðkari. 
Gólfefni: flæðandi parket á stofu, herbergjum og gangi, dúkur á baðherbergi, flotað gólf í eldhúsi.

Skipulag neðri hæðar: hol, sjónvarpsrými, tvö herbergi, anddyri gangur, geymsla, þvottahús og salerni.
Hol: undir stiga, parket á gólfi. notað sem skirfstofa í dag.
Sjónvarpsrými: parket á gólfi, inntaksrými í skáp.
Herbergi I: tvöfaldur fataskápur.
Rennihurð skilur að sjónvarpsrými og gang.
Herbergi II: parket á gólfi.
Þvottahús: flísar á gólfi, gluggi.
Salerni: upphengt salerni, vaskur, flísar á gólfi.
Forsstofa: geymslurými, flísar á gólfi, útgengt í bakgarð.
Gólfefni: fljótandi parket á holi, sjónvarpsrými, herbergjum og gangi, flísar á anddyri, þvottahúsi og salerni.

Skólabraut 23, steyptur kjallari steinaður að utan, efri hæð timbur, klædd að utan með standandi bárujárni. Valmaþak klætt með báru. Gluggar og hurðar timbur.
Staðsetning: Vel staðsett eign í rólegu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og verslun.

Nánari upplýsingar veita:
Ólafur Sævarsson löggiltur fasteignasali / s.820 0303 / olafur@primafasteignir.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRIMA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Prima fasteignasala ehf.
http://www.primafasteignir.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólabraut 23
Skoða eignina Skólabraut 23
Skólabraut 23
300 Akranes
158 m2
Einbýlishús
614
493 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 7
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:01. nóv. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Hraunbær 7
Hraunbær 7
110 Reykjavík
165,3 m2
Raðhús
614
822 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 39
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Heiðarbraut 39
Heiðarbraut 39
300 Akranes
234 m2
Einbýlishús
725
512 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 11
Skoða eignina Hulduholt 11
Hulduholt 11
603 Akureyri
150,7 m2
Raðhús
513
756 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin