Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2026

Vesturgata 12B

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
170.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
879.695 kr./m2
Fasteignamat
124.650.000 kr.
Brunabótamat
77.950.000 kr.
Mynd af Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Byggt 2006
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2294806
Landnúmer
202011
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
4
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Að sögn seljanda í lagi
Raflagnir
Að sögn seljanda í lagi
Frárennslislagnir
Að sögn seljanda í lagi
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Að sögn seljanda í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita og gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Skúr þarfnast viðhalds. 

Eftir kaup seljenda á fasteigninni árið 2023 var gerð úttekt á ástandi fasteignarinnar. 

Vakin er athygli á eftirfarandi atriðum:
Gólfhalli er á 1. hæð og efra gólfi 2. hæðar.
Halli stiga er meiri en skv. byggingarreglugerð.
Ekki er handrið á stiga milli palla á 2. hæð. 
Stigi upp í ris er bráðabirgðastigi. 
í einhverjum tilvikum er frávik frá samþykktum teikningum. 
Kvöð / kvaðir
Hús 12A hefur umgengisrétt um geymslurými 102 í húshluta 12B vegna inntaka veitustofna skv. eignaskiptasamning. 
Glæsilegt 6 herbergja parhús fjær götu við Vesturgötu 12b í Hafnafirði. Húsið er á tveimur pöllum ásamt risi. Húsið er teiknað af arkitektunum Borghildi Sölvey Sturludóttur og Anders Möller Nielsen í samvinnu við Batteríið Arkitektastofu. Húsið stendur á einstaklega fallegri lóð og var leitast við því að raska náttúrunni sem minnst við byggingu parhúsanna. Hverfisverndun er á hraunkletti á lóðinni. Húsið er byggt árið 2005 og er timburhús á steyptri botnplötu. Húsin tengjast eingöngu á steyptri geymslubyggingu sem er á milli húsanna. Rýmin og gluggasetning í eigninni er sérstaklega hönnuð með því markmiði að ná glæsilegu útsýni út á hraunklettinn eða út á sjó. Mikil lofthæð er í flestum rýmum hússins. Gólfhiti er í öllum rýmum hússins nema risi. Einstakt hús á vinsælum stað við Norðurbakkann og miðbæ Hafnafjarðar.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 170,4 fm.
 

Nánari lýsing eignar:
1.hæð
Anddyri rúmgott með góðu skápaplássi og flotað gólf.
Gangur sem tengir saman stigapall, inngengi í alrými og gestasalerni. Útgengt út í garð.
Gestaklósett með upphengdu salerni, upphengdur vaskur með spegli fyrir ofan. Stór gluggi sem snýr út í bakgarð, klæddur með fallegri filmu.
Eldhús með fallegri innrétting með góðu skápaplássi og eyju. Tengi fyrir uppþvottavél og ofn í vinnuhæð. Fallegur stór gólfsíður gluggi með útsýni út á hraunklett.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi með mikillri loftæð, allt að 3,7m. Stórir gólfsíðir gluggar með stórkostlegu útsýni út á hraunklettinn og út á haf. Útgengt út í garð um rennihurð.
Svefnherbergi I/geymsla með flotuðu gólfi.
Gólfefni hæðar er að hluta flot og að hluta gegnheilt bambusparket. Gólfhiti í öllum rýmum.

2.hæð
Hol/Sjónvarpsstofa sem tengir saman rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Hefur verið nýtt sem sjónvarpsstofa.
Svefnherbergi II rúmgott með mikillri lofthæð og parketi á gólfi. 
Þvottahús rúmgott með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi með opnanlegu fagi. Steinmotta á gólfi.
Baðherbergi hefur nýlega verið endurnýjað með innangengri sturtu, upphengt salerni, góð innrétting og flísar á gólfi.
Stofa / vinnurými, gengið er upp hálfan pall. Rúmgóð stofa/vinnurými. Hátt til lofts. Fallegir berir viðarbitar í lofti. Stórglæsilegt útsýni út á sjó.
Svefnherbergi III rúmgott, að hluta undir súð. Útgengt út á suður svalir. Glæsilegt útsýni til sjávar úr herbergi og af svölum.
Gólfefni hæðar er gegnheilt bambusparket í stofum og herbergjum. Steinmotta á gólfi í þvottahúsi. Flísar á gólfi í baðherbergi. Gólfhiti í öllum rýmum.

Ris:
Svefnherbergi IV rúmgott, að hluta undir súð. Gott skápapláss.
Geymsla rúmgóð geymsla í risinu með rennihurð.
Gólfefni hæðar er gegnheilt bambusparket. 

Lóðaréttindi eru í sameign beggja húsanna. Samkomulag eiganda er um að húshlutunum fylgi sér umhirðu og afnotaréttur af lóðinni. 12b fylgir austur-, norður, og vesturhluti lóðarinnar þ.e. frá tröppunni upp á lóðinni til línu dreginni í flúgt af suðurbrún verandarinnar að lóðamörkum að austan. Á lóðinni er niðurgrafið trampólín. Í stétt fyrir framan húsið er snjóbræðsla. Teikningar fyrir palli og heitum pott. Leyfi er fyrir að byggja skúr á lóðinni fyrir þetta hús.

Geymsluskúr sem tilheyrir eigninni er 10 fm. með opnanlegum glugga. 
Geymsla í geymsluhúsi 3,2fm.
Bílastæði fyrir húsið eru tvö skv. eignaskiptasamning næst aðgang húsanna. Bílstæði er á milli lóðanna nr. 12 & 16 og eru ætluð til sérafnota fyrir lóðirnar nr. 10, 12 & 16 við Vesturgötu.

Nýjir þakgluggar eru í húsinu. 
Skipt hefur verið út gólfhitastýribúnaði.
Skipt hefur verið út vatnslásum.

Glæsilegt og vel hannað hús á einstakri lóð á eftirsóttum stað í Vesturbæ Hafnafjarðar. Miðbær Hafnafjarðar í nokkra mínútna göngufjarlægð ásamt almenningsgarðinum Hellisgerði og fallegum gönguleiðum meðfram höfninni í Hafnafirði.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/08/202398.200.000 kr.122.900.000 kr.170.4 m2721.244 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 47C
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45B
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 45B
Hjallabraut 45B
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1
Bílastæði
Opið hús:27. júlí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Asparlaut 1
Asparlaut 1
230 Reykjanesbær
157.6 m2
Fjölbýlishús
423
570 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin