Til sölu mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 1-hæð með sér suður verönd frá stofu. Íbúðin skiptist í hol, tvö svefnherbergi með parketi á gólfum og góðum skápum. Stofa og eldhús með endurnýjaðri innréttingu og tækjum, parketi á gólfum. Baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér 8,8m² geymla í kjallara fylgir.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Til að mynda var nýlega skipt um alla glugga, gler og timburverk. Skipt var um þak fyrir um 13 árum síðan. Íbúðin var öll tekin í gegn árið 2019, gólfefni, bað, og rafmagn. Eldhús uppfært 2021 sem og gólfefni í hjónherbergi.
Tengi fyrir rafbíla er á sameiginlegum bílastæðum.
Áhugasamir sem vilja skoða íbúðina, bókið skoðun á:
arsalir@arsalir.is