Björt og falleg 3ja herbergja íbúð með með svölum sem snúa til suð- vesturs og bílastæði í bílageymslu- Skjólgóðar svalir og afgirtur garður
- Sér bílastæði í bílageymslu með hleðslustöð
- Frábær staðsetning með BRIKK bakarí og veitingastað í sama húsiVið kynnum til sölu fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á annari hæð í glæsilegu húsi við Hafnarbraut á Kársnesinu. Íbúðin er björt og með gluggum til tveggja átta. Suð- vestursvalir snúa út í lokaðan garð sem nýtist bæði til útivistar og samveru. Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð.
Fasteignamat 2026 verður 77.450.000 kr. Nánari upplýsingar veita:Tinna Bryde, Lgf. |
660-5532 | tinna@palssonfasteignasala.is
Umsögn seljanda"Við höfum átt yndisleg fimm ár hér á Hafnarbraut og það er með smá söknuði að við setjum heimilið okkar á sölu. Við erum fjölskylda með tvö börn – 5 ára og 1 árs – og þessi staður hefur reynst okkur ótrúlega vel. Strákurinn okkar hefur eignast góða vini hér í húsinu og leiksvæðið í afgirtum garðinum hefur verið mjög vinsæll. Það er eitthvað sérstaklega gott við að vita að börnin geti hlaupið út og leikið sér í öruggu umhverfi.
Við höfum líka notið þjónustunnar í húsinu til hins ítrasta – hvort sem það er nýbakað brauð og kanilsnúðar í Brikk á morgnana eða kvöldverður á Brasserí Kársnes. Það er mikill lúxus að hafa þetta allt við hendina. Að auki býður hverfið upp á frábærar göngu-, hlaupa- og hjólaleiðir. Nú höfum við ákveðið að stækka við okkur og því er íbúðin okkar komin á sölu. Við vonum innilega að næstu íbúar njóti hennar jafn mikið og við höfum gert."Nánari lýsing á íbúðinni:Forstofa: Opin með fataskápum og parketi
Baðherbergi: Flísalagt með góðri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, rúmgóð walk-in sturta og gólfhiti
Eldhús: Opið inn í stofu með dökkri innréttingu frá HTH, spanhelluborði, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp.
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi á skjólgóðar svalir sem snúa til suð-vesturs.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum
Barnaherbergi: Með parketi og fataskáp
Geymsla: Sér geymsla í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu
Sérbílastæði í bílageymslu með hleðslustöð
Aðstaða og umhverfi:Húsið er í hjarta Kársness – þar sem náttúra og þjónusta mætast. Í sama húsi er veitingastaðurinn Brasserí Kársnes, sem hefur notið mikilla vinsælda, og BRIKK bakarí þar sem hægt er að næla sér í nýbakað bakkelsi á hverjum degi. Gönguleiðir meðfram sjónum, smábátahöfn, leikskólar, grunnskólar og íþróttaaðstaða eru öll í næsta nágrenni.
Eignin hentar jafnt einstaklingum, pörum og litlum fjölskyldum sem vilja stílhreint og vel staðsett heimili.
Nánari upplýsingar veita:Tinna Bryde, A.lgf. |
660-5532 | tinna@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma
775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.