Skessugil 22 íbúð 102 - snyrtileg 3ja herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýli í Giljahverfi - stærð 92,7 m²
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofa er með flísum á gólfi og tvöföldum spónlögðu mahony skáp. Eldhús er með flísum á gólfi og spónlagðri mahony innrétting með flísum á milli skápa og stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Stofa og gangur eru með parketi á gólfi. Í stofu eru gluggar til tveggja átta og hurð út til vesturs á steypta verönd. Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og spónlögðum mahony fataskápum. Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu og sturtu með gleri og opnanlegum glugga. Þvottahús er innaf forstofu og þar eru dúkur á gólfi, bekkur með stálvask og skápum fyrir ofan. Geymsla er inn af þvottahúsi og þar er dúkur á gólfi, hillur á veggjum og opnanlegur gluggi. Einnig er geymslupláss uppi á sameiginlegu geymslulofti.
Annað - Eignin var máluð að utan núna í sumar (2026) - Ljósleiðari er kominn inn og tengdur. - Góð verönd með timbur skjólveggjum - Mjög vel umgengin eign, sér lítið á gólfefnum og innréttingum. - Stutt í leik- grunn- og háskóla - Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.