Fasteignaleitin
Skráð 15. júní 2026

Þórsstígur 29

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
90.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
637.665 kr./m2
Fasteignamat
55.200.000 kr.
Brunabótamat
60.750.000 kr.
Mynd af Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Framkvæmdastjóri
Byggt 2000
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2253869
Landnúmer
178825
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegt
Raflagnir
Upphaflegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upprunalegt.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Kaupendum er bent á að kominn er tími að mála húsin að utan og þá sérstaklega áveðursmegin. 
Þórsstígur, sumarhús í landi Ásgarðs. Hitaveita og glæsilegt útsýni.

Fasteignaland kynnir:  Sumarhús við Þórsstígu 29 í landi Ásgarðs. Um er ræða 65,7 fm sumarhús auk 25,1 fm gestahús eða samtals 90,8 fm samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun. Aðal húsið var byggt árið 2000 en gestahúsið var byggt árið 2014. Í báðum húsunum er hitaveita, lokað ofnakerfi.  Húsin liggja á dregurum, steyptum veggjum. Lóðin er 9000 fm kjarrivaxin eignarlóð með glæsilegu útsýni yfir sveitina og Sogið.  Þetta svæði er lokað með hliði (rafmagnshliði). Húsin eru klætt með bandsöguðu efni.

Lýsing á eign: Forstofa með parketi á gólfi. Tvö herbergi með parketi á gólfi, eitt með góðu skápaplássi. Baðherbergi er með dúk á gólfi, viðarinnréttingu, sturtuklefa og útgengi út á sólpall. Stofan og eldhúsið eru í sama rými með parketi á gólfi og góðri lofthæð. Útgengi út á suður sólpall. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og vönduðum tækjum.

Milliloft: Með parketi á gólfi og opnanlegu fagi. Auk þess er lítil geymsla undir súð.

Geymsla 1: Gengið inn af sólpalli við inngang hússins. Þessi geymsla er einangruð og plöstuð.

Gestahús: Skráð 25,1 fm og er tvískipt. Annar hlutinn alrými með parketi á gólfi, lítill eldhúskrókur, hvít innrétting með ísskáp. Inn af herberginu er baðherbergi með parketi á gólfi, sturtu og útgengi út á suður sólpall. Hinn hlutinn er geymsla sem nýttur er fyrir grill, þvottavél og annan búnað.

Geymsla 2: Ca 3 fm bjálkahús

Stór sólpallur ca. 140 fm með girðingu og skjólgirðingu.
Lóðin er 9.000 fm eignarlóð kjarri vaxin 
Góð aðkoma og næg bílastæði.   

Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 40.000 á ári.

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is


Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2014
25.1 m2
Fasteignanúmer
2253869
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.600.000 kr.

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víðibrekka 11
Heitur pottur
Skoða eignina Víðibrekka 11
Víðibrekka 11
805 Selfoss
92.9 m2
Sumarhús
513
645 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Álftavatn 13
Heitur pottur
Skoða eignina Álftavatn 13
Álftavatn 13
805 Selfoss
97 m2
Sumarhús
524
772 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 4
Á einni hæð
Skoða eignina Heiðarbraut 4
Heiðarbraut 4
805 Selfoss
80.4 m2
Sumarhús
624
558 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarbraut 7
Á einni hæð
Skoða eignina Bjarkarbraut 7
Bjarkarbraut 7
805 Selfoss
74 m2
Sumarhús
413
472 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin