Helgafell fasteignasala og Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali kynna bjarta og vel skipulagða 4-5 herbergja íbúð á fyrstu hæð með suður timburverönd (ca 40fm) við Flétturima 23 í Grafarvogi. Stæði í bílageymslu. Eign sem vert er að skoða!Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla. Möguleiki að gera auka svefnherbergi aftur.
Nánari lýsing:Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa er björt með parketi á gólfi. Útgengi á mjög skjólgóða suður timburverönd, ca 40 fm. Veggur var tekinn niður, til að stækka stofu. Hægt að setja aftur upp og gera auka svefnherbergi, sjá upphaflegu teikningu.
Eldhús með góðu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð og eldhúseyju.
Borðstofa er rúmgóð með flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er stórt og bjart með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með fínni innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, opnanlegum glugga, flísar í hólf og gólf.
Þvottahús/geymsla með vaski, skápum og hillum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi og dúkur á gólfi.
Skjólgóð suður timburverönd, ca 40fm og stór sameiginlegur garður með leiktækjum. Stæði í bílageymslu og sér merkt bílastæði á bílaplani. Hleðslustæði til staðar. Þvottaaðstaða og dekkjageymsla er í bílageymslu.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla með útgengi beint í sameiginlega garðinn.
Góð eign á flottum stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóli og skóli í göngufæri ásamt mörgum leikvöllum.Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit straxGott viðhald seinustu árin að innan sem utan, mjög sterkt húsfélag til staðar.
Framkvæmdir utanhúss/sameign2016 - 2017 voru múrviðgerðir gerðar á blokkinni. Gluggar yfirfarnir og blokkin máluð að utan.
2019 - 2023 var farið í þakviðgerðir og þakskyggni fyrir ofan innganga.
2025 var stigagangurinn málaður, ásamt því að skipt var um þakplötur í anddyri.
Framkvæmdir innanhúss2017 var eldhúsið opnað og endurnýjað með tækjum frá Ormsson.
2020 var baðherbergið endurnýjað; sett uppáhengt klósett, nýtt sturtugler, ný innrétting, handklæðaofn, ásamt því að sett var upp rennihurð til að baðherbergið myndi nýtast betur.
2021 Nýjar hurðar á alla íbúðina frá Birgisson.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is