Fasteignasalan TORG og Lilja Ragnarsdóttir lgf.kynna. Glæsilega sérhæð við Lautarveg 12 í Fossvogsdalnum. Um er að ræða íbúð ì nýbyggongu með sér inngangi á annari hæð í þríbýli. Eignin er skráð skv Þjóðskrá Íslands alls 169,2 fm þarf af er bílskúr skráður 30.fm. og geymsla í sameign 9,4fm. Eignin skiptist í forstofu, alrými sem myndar eldhús, borðstofu og setustofu með rennihurð út á sér 11fm. svalir til suðurs, sjónvarps rými, þvottaherbergi, tvö baðherbergi, 2 svefnherbergi. Innangengt er inná sér baðherbergi frá hjónaherbergi, 5,2fm svalir út frá hjónaherbergi, Auðvelt er að breyta sjónvarpsstofu í 3 svefnherbergið. Sérafnotaflötur eignarinnar fyrir utan svalir er um 48,8fm þaksvalir ofan á bílskúrum og er hann flísalagður á flísastóla, þar er gert ráð fyrir að hægt sé að koma fyrir heitum potti. Eignin afhendist fullbúinn án gólfefna samkv. skilalýsingu. Húsið stendur innarlega í botnlanga neðst í Fossvoginum þar sem njóta má veðurblíðu, útivistar og örstutt er út á stofnbrautir og í alla þjónustu.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Lilja Rgnarsdóttir lgf. Í lilja@fstorg.is eða í síma:663-0464
Frekari lýsing:
Íbúðin er afhent full kláruð án gólfefna fyrir utan votrými sem eru flísalögð samkvæmt skilalýsingu seljanda:• Allar innréttingar eru frá Parka af gerðinni SCHMIDT, litur VISION og FOX.
• Eldhústæki af vandaðri gerð frá SIMENS. innbyggð uppþvottavé og ísskápur með frysti.
• Borõplötur í eldhúsi og þvottaherbergi eru hitapolin stein, vaskur er undirlímdur.stálvaskur. Blöndunartæki í eldhúsi eru frá GROHЕ.
• Sturtutæki eru innbyggő frá GROHE, handlauga tæki eru frá GROHE, handlaug er niðurfeldog handlaugatæki eru grá GROHE.
• Gólfefni á votrýmum og forstofu eru 120x60 flísar frá PARKA.
• Innihurðir eru yfirfeldar, Sprautaðar í litnum VISION.Veggir og hluti lofts eru málaðir í ljósum lit. önnur loft eru klædd með hljóðdempandi dúk
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Lilja Rgnarsdóttir lgf. Í lilja@fstorg.is eða í síma:663-0464ATH: myndir sem sýna húsgögn eru eingöngu til að gefa hugmynd af uppröðun og eru ekki af raunverulegum húsgögnum.
ATH: skipulag á teikningu getur verið frábrugðið því sem er í raun að einhverju leiti.
Hafa skal eftirfarandi í huga við afhendingu á eign.Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi tilkynna seljanda þá áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni. Í nýbyggingum er oft mikill raki svo sem í steypu, floti og málningu. Þessi raki mun hverfa á einu tiltveimur árum miðað við venjulega notkun og góða útloftun. Áður en gólfefni eru lögð þarf að gera viðeigandi rakamælingar. Einnig þarf að tryggja viðeigandi högghljóðdempun undir þau gólfefni sem lögð eru. Í plötum og veggjum hússins liggja ýmsar lagnir og parf því að gæta varúðar ef verið er að bora fyrir festingum. Raflagnir í veggjum liggja td. almennt frá tenglum og rofum upp í loft. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt glugga, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafög lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna. Ütidyrahurðir í hjólageymslu og inntaksrými verður að fylgjast vel með og umgangast þannig að engar þvinganir verõi við umgang þeirra. Reglulegt viðhald hurðanna er nauðsynlegt. Nauðsynlegt er að smyrja reglulega lamir á opnanlegum fögum og hurðum
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.