Fasteignaleitin
Skráð 20. mars 2026

Skeggjagata 4

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
200.1 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
185.000.000 kr.
Fermetraverð
924.538 kr./m2
Fasteignamat
162.900.000 kr.
Brunabótamat
105.640.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2011160
Landnúmer
103160
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurnýjað að hluta, sjá lýsingu í söluyfirliti
Raflagnir
Endurnýjað að hluta.
Frárennslislagnir
skólp/frárennslislögn var fóðruð fyrir ca. 15 árum af fyrri eiganda.
Gluggar / Gler
Gler endurnýjað í tíð fyrri eiganda, gluggar upprunalegir
Þak
Járn á þaki var endurnýjað fyrir ca 25 árum
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já út frá svefnherbergi á efri hæð, suður svalir.
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Tveir inngangar
Gallar
Móða í hluta glerja og sprunga í gleri á salerni efri hæð.
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Vel skipulagt, mikið endurnýjað og flott einbýlishús við Skeggjagötu 4, 105 Reykjavík með bílskúr og stæði fyrir framan ásamt aukaíbúð í kjallara með sérinngangi.

Húsið er í dag skráð sem 200,1 fm. en nýlega voru teikningar og skráningartafla fyrir húsið endurnýjaðar, þá mælist heildarstærð hússins 244,0 fm. Sjá meðfylgjandi gögn með söluyfirliti um stærð hússins. Ekki hefur verið sótt um að fá skráningu eignarinnar breytt.

Húsið að Skeggjagötu 4 er byggt árið 1936 af Jónatani Hallvarðssyni lögreglustjóra og síðar hæstaréttardómara. Húsið teiknaði Gunnlaugur Halldórsson, arkitekt. Það voru tvö önnur hús byggð eftir sömu teikningu (Hávallagata 21 og Kirkjuvegur 67 Vestmannaeyjum). Húseigendur keyptu húsið í lok árs 2016. Fyrri eigandi hafði fengið Svein Kjarval, húsgagnahönnuð, til að endurinnrétta húsið þegar hann keypti það árið 1963 og teiknaði hann meðal annars panelvegg og arinn með Drápuhlíðargrjóti.

Núverandi eigendur hafa farið í miklar og flottar endurbætur á húsinu.

Skipulag er eftirfarandi:

1. hæð: Tvær stórar stofur, sjónvarps/svefnherbergi, eldhús, lítið salerni og útgengi út í garð, hol, stigi á efri hæð og stigi niður í kjallara.

2. hæð: Hjónaherbergi með útgengi suðursvalir, 2 svefnherbergi, eitt mjög stórt og annað minna, salerni, baðherbergi, geymsla/þvottaherbergi.

Smelltu á linkinn til að skoða húsið í 3D 

Kjallari / aukaíbúð: Eldhús og anddyri, stór og rúmgóð stofa, stórt baðherbergi með tengi fyrir þvottavél, stórt svefnherbergi.
Í kjallara er einnig salerni og tvær geymslur (önnur getur nýst sem þvottahús)

Smelltu á linkinn til að skoða aukaíbúð í kjallara  

Bílskúr stendur upp við húsið og er 21,7 fm með innkeyrsluhurð að framan og hurð út í garðinn að aftan.

Nánari upplýsingar og bókun í skoðun veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is

Árið 2017 var farið í endurbætur innandyra. Panelnum í stofunni og arninum var haldið í upprunalegu horfi. Eldhúsið var fært úr sérherbergi yfir í opið rými út af borðstofunni. Endurnýjaðar allar lagnir í eldhúsin út grind (bæði uppi og í kjallaranum). Ný AEG tæki voru keypt eldhúsin. Lagt var niðurlímt gegnheilt fasað fiskibeinaparket frá Birgison á öll gólf nema stigann og baðherbergin. Stiginn var teppalagður. Salernin voru uppfærð með nýjum upphengdum klósettum og spegill með led ljósi var settur upp á klósett uppi og baðherbergi. Búin til þvottaaðstaða á efri hæð í geymslunni. Tenglum er fjölgað í flestum rýmum. Allir veggir og loft voru máluð árið 2022. Niðri var búin til ný íbúð. Þar var mikið endurnýjað. Loft og veggir voru heilspartslaðir og málaðir, gluggar málaðir að innan og utan, ný eldhúsinnrétting og tæki. Nýtt baðherbergi var búið til með sturtu og upphengdu salerni. Allir ofnar voru endurnýjaðir og allt gler gluggum. Gólf var flotað 2017 og nýtt planka parket lagt árið 2022. Lagnir í gólfi voru endurnýjaðar. Austurveggur var einangraður upp á nýtt. Bílskúr var málaður í hólf og gólf og múrað í skemmdir 2017, skolpið var húðað af fyrri eiganda. Húsið var málað að utan 2019, drenað var garðmegin 2022. Skipt var um parket á svefnherbergi í kjallaraíbúð, veggir í stofu, svefnherberginu og baðherbergið málað árið 2025. Skipt var um þröskuld á svölum á 2. hæð, botnstykki lagað og skipt um gler í sjónvarpsherberginu á 1. hæð, innkeyrslan fyrir framan bílskúrinn hellulögð og sett hitarör undir árið 2026. Járn á þaki var endurnýjað fyrir ca. 25 árum og skólp/frárennslislögn var fóðruð fyrir ca. 15 árum bæði gert af fyrri eiganda.

Gott og vel skipulagt hús á flottum stað miðsvæðis í Reykjavík.

Nánari upplýsingar veita:
Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is
Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is
og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/08/201879.700.000 kr.100.000.000 kr.200.1 m2499.750 kr.Nei
26/10/201656.850.000 kr.72.000.000 kr.200.1 m2359.820 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1942
21.4 m2
Fasteignanúmer
2011160
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.490.000 kr.
Byggt 1936
32.4 m2
Fasteignanúmer
2011160
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.500.000 kr.

Myndir (59)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyktarás 15
Skoða eignina Eyktarás 15
Eyktarás 15
110 Reykjavík
269.6 m2
Einbýlishús
716
649 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Brekadalur 12
Bílskúr
Skoða eignina Brekadalur 12
Brekadalur 12
260 Reykjanesbær
245.5 m2
Einbýlishús
624
566 þ.kr./m2
138.900.000 kr.
Skoða eignina Langabrekka 26
Bílskúr
Skoða eignina Langabrekka 26
Langabrekka 26
200 Kópavogur
261.8 m2
Einbýlishús
634
725 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Jakasel 25
Opið hús:12. apríl kl 14:00-14:30
Skoða eignina Jakasel 25
Jakasel 25
109 Reykjavík
255.9 m2
Einbýlishús
936
696 þ.kr./m2
178.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin