Skráð 21. feb. 2026

Brekkubær 28

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
244.5 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
157.900.000 kr.
Fermetraverð
645.808 kr./m2
Fasteignamat
113.700.000 kr.
Brunabótamat
111.150.000 kr.
VB
Viðar Böðvarsson
Lögg fasteignasali
Byggt 1980
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2045751
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
30101
Vatnslagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Raflagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Svalir
0
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Mikið endurnýjað, vel skipulagt raðhús á góðum stað í Árbæ, stutt í alla þjónustu. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi og aukaíbúð með sérinngangi. Frábær útiaðstaða í garði með palli og heitum potti. Bílskúr nettengdur og með rafb.hleðslu. Gott geymslurými. Húsið er frábært fjölskylduhús og er vel tæknivætt. Nettenglar og wifi um allt hús. Videodyrabjalla að framan. Snjalllæsing í kjallara. Snjallstýring á heitum potti o.fl. sem fylgir. Í húsinu er óskráð rými, þannig að heildarfermetrar eru um 265 auk óskráðs geymslulofts. Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, lögg. fast. vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

 

Nánari lýsing: Aðalhæð: Forstofa með flísum og fataskáp. Gestasnyrting með nýlegum tækjum og flísum, upphengt salerni. Þvottahús er flísalagt. Eldhús með nýlegri, fallegri innréttingu, granítborðplata, spanhelluborð og bakaraofn í vinnuhæð, góð borðaðstaða. Borðstofa og stofa með nýju parketi. Arinn í stofu. Gengt er frá borðstofu út á verönd og þaðan í afgirtan garð. Þar er góður pallur og heitur pottur o.fl. Önnur hæð: Hol með góðu skápaplássi og fjögur svefnherbergi: Hjónaherbergi er rúmgott með sérfataherbergi með góðu skápaplássi. Úr hjónaherbergi er útgengt á suðursvalir með nýrri svalalokun sem er að fullu opnanleg. Barnaherbergin þrjú eru með góðu skápaplássi. Nýlegt parket. Nettenglar í öllum herbergjum. Baðherbergi með sturtu og baðkari, flísalagt í hólf og gólf og hita í gólfi. Háaloft aðgengilegt úr holi. Kjallari: Í kjallara er glæsileg aukaíbúð með sérinngangi, þar er baðherbergi og eldhúskrókur. Í kjallara eru einnig tvö gluggalaus rými, sem eru óskráð og auka notagildi og möguleika hússins, t.d. mögulegt að leigja út kjallarann í heilu lagi. Í dag er þetta rými notað sem tómstundaaðstaða og geymsla. Afgirtur suðurgarður með palli (byggingarár 2021). Þar er góð útivistaraðstaða með snjallstýrðum heitum potti. Lítið garðhús. Þak er nýmálað og yfirfarið, þakkantur endurnýjaður fyrir ca. 10 árum. Múrverk yfirfarið og lagfært 2024-2025, þakrennur nýyfirfarnar. Rafmagnstafla var endurnýjuð árið 2021. Snjóbræðsla er fyrir framan hús. Eignarlóð. Frábær staðsetning og öll þjónusta í göngufæri.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/09/201136.600.000 kr.41.000.000 kr.244.5 m2167.689 kr.
29/08/200737.035.000 kr.52.000.000 kr.244.5 m2212.678 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tangabryggja 13
Bílastæði
Skoða eignina Tangabryggja 13
Tangabryggja 13
110 Reykjavík
191 m2
Fjölbýlishús
623
759 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Elliðabraut 4
Bílskúr
Bílastæði
Opið hús:23. feb. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Elliðabraut 4
Elliðabraut 4
110 Reykjavík
199.2 m2
Fjölbýlishús
324
813 þ.kr./m2
162.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturás 28
Skoða eignina Vesturás 28
Vesturás 28
110 Reykjavík
235.4 m2
Raðhús
926
696 þ.kr./m2
163.900.000 kr.
Skoða eignina Selásbraut 42
Bílskúr
Skoða eignina Selásbraut 42
Selásbraut 42
110 Reykjavík
234.7 m2
Raðhús
513
609 þ.kr./m2
142.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin