Fasteignaleitin
Skráð 2. júní 2026

Kiðjaberg 35

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
54.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.000.000 kr.
Fermetraverð
1.261.426 kr./m2
Brunabótamat
27.500.000 kr.
Byggt 1991
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22077094
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Huggulegt og vel staðsett sumarhús á stórri gróinni eignarlóð á Holtinu í Kiðjabergi. Stutt á golfvöllinn hjá Golfklúbbi Kiðjabergs. Há tré eru á lóðinni og mikil veðursæld. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson lögfr. og löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is 

*** Smelltu hér fyrir leiðarlýsingu ***

*** Smelltu hér til að sækja söluyfirlit *** 

Um er að ræða nánar tiltekið Kiðjaberg 35, sumarhús á lóð nr 35 í Kiðjabergi, 805 Selfossi, F2207709. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 54,7 fm. Húsið er byggt árið 1991. Eignin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í alrými, tvö svefnherbergi og baðherbergi með sturtu. Svefnloft er yfir hluta hússins en mikil lofthæð er í alrými. Nýtt gólfefni var lagt 2018 (eikarparket). Geymsla er við aðalinnganginn. Stór pallur er í kringum húsið (þrjár hliðar). Útgengt er á pallinn úr stofu/eldhúsi í alrými. Kofi fyrir börn stendur á lóðinni. 

Lóðin er 11.000 fm eignarlóð. Heimilt er samkvæmt gildandi deiliskipulagi að reisa allt að 330 fm hús á lóðinni miðað við hámarksnýtingarhlutfall 0,03. Eignin er kynt með ofnakerfi, hitaveita er á svæðinu, tekin inn í húsið 2017. Hægt að vera með heitan pott. 

Eldhús er með snyrtilegri grárri L-innréttingu og efri skápum. Parket á gólfi. 
Stofa er björt, með aukinni lofthæð og stórum gluggum. Parket á gólfi. Útgengi á stóran sólpall. 
Herbergi 1 er rúmgott hornherbergi með glugga í tvær áttir. Parket á gólfi. 
Herbergi 2 er rúmgott. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er með snyrtilegri hvítri innréttingu, salerni og sturtuklefa. Opnanlegur gluggi. Dúkur á gólfi. 
Anddyri er með dúk á gólfi. 
Geymsla er við aðalinngang. 
Kofi fyrir börn stendur á lóðinni. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grenilundur 14
1.jpg
Skoða eignina Grenilundur 14
Grenilundur 14
806 Selfoss
50,9 m2
Sumarhús
11
705 þ.kr./m2
35.900.000 kr.
Skoða eignina Klettsholt 7
Heitur pottur
dji_fly_20260908_094836_0720_1788861545260_photo.JPG
Skoða eignina Klettsholt 7
Klettsholt 7
806 Selfoss
72,6 m2
Sumarhús
322
536 þ.kr./m2
38.900.000 kr.
Skoða eignina B-Gata 12
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina B-Gata 12
B-gata 12
805 Selfoss
112,7 m2
Sumarhús
412
620 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvellir 4
Friðjón_vefur (11).jpg
Skoða eignina Sólvellir 4
Sólvellir 4
806 Selfoss
152,4 m2
Sumarhús
624
636 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin