Fasteignaleitin
Skráð 17. feb. 2024

Klettagljúfur 23

HæðSuðurland/Ölfus-816
402.6 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
224.700.000 kr.
Fermetraverð
558.122 kr./m2
Fasteignamat
128.350.000 kr.
Brunabótamat
223.500.000 kr.
HJ
Hallveig Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
stofnfasteignasala.isEignalisti
Byggt 2007
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2301462
Landnúmer
193051
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
STOFN FASTEIGNASALA OG HALLVEIG JÓNSDÓTTIR LÖGGILTUR FASTEIGNASALI KYNNA – GLÆSILEGA 402,6 FM EIGN MEÐ AUKAÍBÚÐ Í KLETTAGLJÚFRI 23 Í ÖLFUSI
Einstaklega glæsileg og vönduð eign þar sem fáguð innanhússhönnun, rúmgóð alrými og stórbrotið útsýni fara saman.
Stofn fasteignasala kynnir til sölu glæsilega 402,6 fm eign í Klettagljúfri 23 í Ölfusi, í um 35 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Eignin (F-230-1462) samanstendur af 301,2 fm aðalíbúð á efri hæð, með innbyggðum tvöföldum bílskúr, og 101,4 fm aukaíbúð á jarðhæð, að meðtalinni geymslu.
Innanhússhönnun er eftir Rut Káradóttur innanhússarkitekt og einkennist eignin af vönduðum innréttingum, fallegu efnisvali, mikilli lofthæð og björtum, rúmgóðum alrýmum.
Frá eigninni nýtur fallegs útsýnis til suðurs, vesturs og norðurs. Rúmgóð hjónasvíta, svalir með heitum potti og glæsilegur arinn eru meðal þess sem gerir eignina sérstaklega áhugaverða.
Sjálfstæð aukaíbúð með sérinngangi býður jafnframt upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars til útleigu eða fyrir fjölskyldumeðlimi.
Einstök eign fyrir þá sem leita að rúmgóðu fjölskylduheimili þar sem hönnun, gæði og fjölbreyttir nýtingarmöguleikar fara saman.

Nánari upplýsingar og bókun skoðunar: Hallveig Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali Sími: 699-0496 Netfang: hallveig@stofnfasteignasala.is

HELSTU KOSTIR EIGNARINNAR
•       Glæsileg 301,2 fm aðalíbúð á efri hæð.
•       101,4 fm aukaíbúð á jarðhæð að meðtalinni 6,4 fm geymslu.
•       Innanhússhönnun eftir Rut Káradóttur.
•       Það má byggja 100 fm hesthús  eða skemmu, púðinn er kominn.
•       Björt og rúmgóð alrými með mikilli lofthæð.
•       Fallegt útsýni til suðurs, vesturs og norðurs.
•       Rúmgóð hjónasvíta með fataherbergi og svölum.
•       Heitur pottur á svölum.
•       Innbyggður tvöfaldur bílskúr með rafdrifnum hurðum.
•       Gólfhiti og loftræstikerfi að stærstum hluta hússins.
•       Samræmdar innréttingar og vandaður frágangur.

 
NÁNARI LÝSING EIGNAR
AÐALÍBÚÐ – EFRI HÆÐ, 301,2 FM (01-0201)

Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með ljósu flotuðu gólfi og góðum fataskápum.
Stofa og borðstofa: Einstaklega glæsilegt og opið alrými þar sem mikil lofthæð, falleg hönnun og rúmgóð rými njóta sín til fulls. Eldhús, borðstofa og stofa mynda saman bjart og skemmtilegt alrými.
Fallegur stoðveggur skilur að eldhús og stofurými og í honum er glæsilegur arinn með blámaðri járnklæðningu sem setur sterkan svip á rýmið. Sérstakur hljóðdúkur hefur verið felldur inn í loft stofunnar.
Eldhús: Stórt og glæsilegt eldhús með vandaðri hvítri innréttingu sem nær upp í loft. Rúmgóðir skápar, búrskápur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Stór eldunareyja með gashelluborði og góðu skúffuplássi. Eldhúsið er vel skipulagt og býður upp á góða vinnuaðstöðu.
Svefnherbergisálma: Frá alrýminu er gengið inn á herbergisgang þar sem svefnherbergi og baðherbergi eru staðsett.
Baðherbergi: Glæsilegt og rúmgott baðherbergi með flísalögðum veggjum, vandaðri innréttingu, fallegum speglavegg með lýsingu, vegghengdu salerni og rúmgóðri walk-in sturtu með glerskilrúmi. Flísalagður setbekkur við vaskinn setur skemmtilegan svip á rýmið.
Svefnherbergi: Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi án fastra fataskápa sem bjóða upp á fjölbreytta möguleika við innréttingu.
Hjónasvíta: Innst á herbergisgangi er rúmgóð hjónasvíta með sér fataherbergi. Í fataherberginu eru fataskápar eftir heilum vegg og þaðan er útgengt á svalir sem snúa til norðvesturs.
Þvottaherbergi: Stórt og vel skipulagt þvottaherbergi með vönduðum innréttingum, góðu skápaplássi, rúmgóðri borðplötu og vaski. Þar er einnig flísalagður setbekkur, sér salernisherbergi með vegghengdu salerni og aðskilin walk-in sturta.
Úr þvottaherberginu er útgengt á svalir þar sem heitur pottur er staðsettur.
Aukaforstofa og bílskúr: Frá herbergisgangi er gengið inn í aukaforstofu með sérinngangi og þaðan er innangengt í innbyggðan, tvöfaldan bílskúr.
Bílskúrinn er með mikilli lofthæð, rafdrifnum bílskúrshurðum, þriggja fasa rafmagni og búið er að leggja fyrir hleðslustöð rafbíla. Þar er einnig innrétting með vaski.

AUKAÍBÚÐ – JARÐHÆÐ, 101,4 FM (01-0102)
Á jarðhæð hússins er aukaíbúð með sérinngangi norðanmegin við húsið og verönd við innganginn. Íbúðinni fylgir einnig 6,4 fm geymsla.
Íbúðin er í dag nýtt sem stúdíóíbúð en skipulag hennar býður upp á möguleika á að afmarka sérstakt svefnherbergi með glugga.
Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskáp. Inn af forstofu er sér þvottaherbergi með góðri innréttingu og skápaplássi.
Eldhús og stofa: Opið og rúmgott alrými með snyrtilegri L-laga eldhúsinnréttingu, viðarborðplötu, góðu skápaplássi og innbyggðri uppþvottavél. Úr stofu er útgengt um rennihurð á verönd.
Svefn- og vinnuaðstaða: Í íbúðinni er alrými með glugga sem í dag er nýtt sem vinnuaðstaða. Möguleiki er á að stúka rýmið af sem sérstakt svefnherbergi. Inn af því er núverandi svefnaðstaða með góðum fataskápum.
Baðherbergi: Vandað baðherbergi með flísalögðum veggjum, innréttingu við vask, speglavegg með lýsingu, flísalögðum setbekk, vegghengdu salerni, handklæðaofni og walkin sturtu með glerskilrúmi.
Geymsla: Íbúðinni fylgir 6,4 fm geymsla samkvæmt fyrirliggjandi skilgreiningu.
Aukaíbúðin býður upp á áhugaverða nýtingarmöguleika, hvort sem er til útleigu eða fyrir fjölskyldumeðlimi.

LÓÐ OG UMHVERFI
Húsið stendur á stórri lóð í Klettagljúfri í Ölfusi. Staðsetningin býður upp á fallegt útsýni til þriggja átta.
Samkvæmt eldri upplýsingum um deiliskipulag Gljúfurárholts frá árinu 2007 var gert ráð fyrir möguleika á byggingu allt að 100 fm hesthúss á lóðinni. Jarðvegsskipti hafa farið fram á fyrirhuguðum byggingarstað norðan við húsið.
Kaupendum er bent á að kynna sér gildandi skipulagsheimildir, lóðarréttindi og skilyrði hjá viðkomandi sveitarfélagi.

FRÁGANGUR OG TÆKNILEG ATRIÐI
•       Húsið er steinað að utan og þakkantar klæddir álklæðningu.
•       Gólf eru flotuð og lökkuð í ljósum lit.
•       Gólfhitakerfi og loftræstikerfi eru að stærstum hluta hússins.
•       Innfelld lýsing er í loftum hússins.
•       Upptekið loft í stofurými aðalhæðar með sérstökum hljóðdúk.
•       Samræmdar innréttingar, hurðir og fataskápar skapa heildstætt og fágað yfirbragð.

SAMANTEKT
Hér er á ferðinni einstaklega glæsileg og vel hönnuð eign sem sameinar rúmgóða fjölskyldubúsetu, vandaðan frágang og fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Fallegt útsýni, glæsileg aðalíbúð, sjálfstæð aukaíbúð og rúmgóður tvöfaldur bílskúr gera eignina að áhugaverðum valkosti fyrir þá sem leita að góðu rými og vandaðri hönnun í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Nánari upplýsingar og bókun skoðunar: Hallveig Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali Sími: 699-0496 Netfang: hallveig@stofnfasteignasala.is
 



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/04/201822.500.000 kr.32.000.000 kr.304.2 m2105.193 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (66)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Borgarheiði 17V
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Borgarheiði 17V
Borgarheiði 17V
810 Hveragerði
113 m2
Parhús
53
548 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Njörvasund 16
Á einni hæð
Skoða eignina Njörvasund 16
Njörvasund 16
104 Reykjavík
71,8 m2
Fjölbýlishús
312
999 þ.kr./m2
71.700.000 kr.
Skoða eignina Túngata 25
Efsta hæð
Skoða eignina Túngata 25
Túngata 25
580 Siglufjörður
90,4 m2
Fjölbýlishús
412
331 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Hólmgarður 51
Skoða eignina Hólmgarður 51
Hólmgarður 51
108 Reykjavík
81,3 m2
Fjölbýlishús
312
946 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin