Miklaborg kynnir: Glæsilegt endaraðhús við Nesbala á Seltjarnarnesi. Húsið er á einni hæð með óskráðu ca. 18 fm. rými á efri hæð sem nýtist sem gott vinnuherbergi og geymsla. Hæðin skiptist í stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og þvottahús auk bílskúrs. Ca. 17 fm óskráð sólstofa fylgir, þannig að með óskráðu rými er heildarfermetrafjöldi nálægt 195.
Allar nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, lögg fast: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum og fataskáp.
Hol, borðstofa og setustofa með flísum á gólfi.
Gengt út á flísalagða, upphitaða sólstofu og þaðan á pall með heitum potti og í afgirtan fallegan garð. Markisa er yfir hluta af pallinum og í garðinum er geymsluskúr fyrir garðáhöld.
Eldhús er flísalagt með fallegri innréttingu, keramikhelluborði og bakaraofni. Uppþvottavél er í eldhúsi og góður borðkrókur.
Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, þau eru öll parketlögð
Hjónaherbergi er rúmgott með skáp og skápar í báðum barnaherbergjum.
Baðherbergi er rúmgott með baðkari og sturtuklefa,tvöföldum vaski og er flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaherbergi er flísalagt með hillum og skápum.
Bílskúr er með flísalögðu gólfi. Hann er með hita, vatni og rafmagni og geymslurými yfir hluta skúrsins. Í bílskúrnum er 3ja fasa rafmagn.
Forhitari og hitastýrikerfi húsiins er nýlegt.
Lóðin er eignarlóð. Í enda botnlangans er sameiginleg leikaðstaðafyrir börn.
Þetta er sérlega vandað endaraðhús á frábærum stað á Seltjarnarnesi.
Allar nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, lögg fast: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
170 | 160.3 | 169 | ||
170 | 181.9 | 179,9 | ||
170 | 189.4 | 178 | ||
170 | 201.8 | 152,9 | ||
170 | 212.5 | 179,5 |