GIMLI KYNNIR - MJÖG FALLEG OG RÚMGÓÐ 3JA-4RA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 4. HÆÐ Í NÝLEGU LYFTUHÚSI Á ÞESSUM GÓÐA STAÐ
EIGNINNI FYGLIR STÆÐI Í BÍLAGEYMSLUHér má finna myndband um eignina
Nánari lýsing;Komið er inn í
forstofu með skáp.
Gangur. Gott
hjónaherbergi með skápum á heilum vegg. Flísalagt
baðherbergi með "walk inn" sturtu og innréttingu.
Þvottaherbergi með innréttingu. Gott
svefnherbergi.Stofa, borðstofa og eldhús eru í sama stóra alrými, falleg innrétting í eldhúshluta, innbyggð uppþvottavél.
Útgengt er á stórar
svalir til suðurs og vesturs (er í L), á svölum er
geymsla fyrir grill og svalarhúsgögn.
Gólfefni; Harðparket er á öllum gólfum nema á baði og þvottahúsi eru flísar.
Íbúðinni fylgir geymsla (11,4 fm af heild) og stæði í lokaðri bílageymslu.
Í heild er um að ræða mjög góða íbúð, sameign öll snyrtileg og aðkoma mjög góð, stutt í almenna þjónstu.ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR ELLERT S. 661-1121 EÐA Á SKRIFSTOFU S. 570-4800, ellert@gimli.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup ) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.000,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.