Atvinnueign kynnir til leigu: Virkilega björt og opin 285 fm skrifstofa með frábæru útsýni í hjarta Reykjavíkur á efstu hæð við Laugaveg 26.
Inngangur í húsið er frá bílastæði Grettisgötumegin. Gengið er inn um sameiginlegan inngang með lyftu. Rýmið er á 4. hæð (5. hæð frá Laugavegi). Rýmið er opið vinnurými ásamt fundarherbergjum. Einstaklega björt og falleg skrifstofa.
Á lóðinni eru 24 sameiginleg bílastæði fyrir húsið og hafa leigutakar í húsinu samið um skiptingu þeirra.
Laust eftir samkomulagi. VSK bætist við leiguverð. Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma
847-7700 eða
olafur@atvinnueign.is Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -