Fasteignaleitin
Skráð 13. okt. 2026

Stapasíða 11 I

RaðhúsNorðurland/Akureyri-603
162.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
95.900.000 kr.
Fermetraverð
589.791 kr./m2
Fasteignamat
91.600.000 kr.
Brunabótamat
95.800.000 kr.
Mynd af Ólafur Már Þórisson
Ólafur Már Þórisson
Löggildur fasteignasali
Byggt 1988
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2150752
Landnúmer
149456
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt en búið að skipta um tengla og rofa
Frárennslislagnir
Upprunaleg
Gluggar / Gler
Skipt um gler 2021
Þak
Endurnýjað 2021
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Til suðurs og norðurs
Upphitun
Hitaveita/ofnakerfi
Inngangur
Tveir inngangar
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Stapasíða 11 I

**Seld með fyrirvara**

Virkilega vel skipulögð og falleg 4-5 herbergja raðhúsíbúð á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr sem hefur verið töluvert endurnýjuð. Heitur pottur á stórum timburpalli og góður geymsluskúr með rafmagni aðgengilegur af palli. Eignin er samtals 162,6 fm., þar af er bílskúr 23 fm.. 


Íbúðin skiptist í á neðri hæð, forstofa, þvottahús með bakdyrainngangi, snyrtingu, stofu og eldhús. Á efri hæð, stórt hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. 
  • Húsið nýmálað
  • Þak endurnýjað
  • Gler endurnýjað
  • Hvitaveitupottur á palli
  • Bílskúr aðgengilegur úr íbúð
  • Nýlegt eldhús og eldhústæki

Neðri hæð: 
Forstofa er með ljósar flísar á gólfi og góðum fataskáp
Þvottahús er inn af forstofu, þar eru sömu flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, vask og gott skápapláss. Bakdyrainngangur er í þvottahús. 
Snyrting neðri hæðar er með flísar á gólfi, salerni og litla inrnéttingu undir vask.
Stofa er afar rúmgóð og björt með parket á gólfi og úr stofu er gengið út á timburpall til suðurs. 
Eldhús var endurnýjað 2021, þar er parket á gólfi, ljós innrétting með viðar bekkjarplötu, stæði fyrir ísskáp, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og tækjaskápur. Við enda innréttingar er lítið barborð. 
Geymsla er undir stiga neðri hæðar. 
Bílskúr er innangengur og þar var áður geymsla í enda bílskúrs en er hann nú opinn. Nýleg innkeyrsluhurð er í bílskúr og hleðslustöð tengd við enda bílskúrs. 

Efri hæð: 
Teppi er á stiga milli hæða
Hol er afar rúmgott, með parket á gólfi og möguleiki að vera þar með sjónvarpshol.
Svefnherbergi eru þrjú, tvö þeirra afar rúmgóð og öll með parket á gólfi og stórum fataskápum. Mögulegt er að bæta við einu svefnherbergi. Úr hjónaherbergi og minna barnaherberginu er útgengt út á svalir, til norðurs úr hjónaherbergi sem er þá yfir bílskúr að hluta og til suðurs úr barnaherbergi. 
Baðherbergi er með ljósar flísar á gólfi og hluta veggja í kringum baðkar, sturtu og innréttingu í kringum vask. Gluggi er á baðherbergi. 

Annað: 
-Húsið málað að utan 2025
-Þak endurnýjað 2021
-Nýtt gler í íbúð 2021
-Eldhús og tæki endurnýjuð 2022
-Ný innkeyrsluhurð 2024
-Útidyrahurðir endurnýjaðar
-Parket endurnýjað að stærstum hluta 2019
-Hitaveitupottur settur 2021
-Búið að leggja rafmagn í geymsluskúr á palli og þar eru innstungur
-Ljós á palli tengd við birtuskynjara
-Ljósleiðari tengdur
-Stutt í leik- og grunnskóla
-Rakaummerki eru í lofti á bílskúr sem eru undir svölum efri hæðar. Samkv fyrri eiganda var búið að setja sealant efni á svalirnar og hafa þessi ummerki ekkert breyst hjá núverandi eigendum. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/03/202479.850.000 kr.82.500.000 kr.162.6 m2507.380 kr.Já
23/10/201327.650.000 kr.28.500.000 kr.171 m2166.666 kr.Já
08/11/201024.950.000 kr.25.000.000 kr.171 m2146.198 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grandavegur 47
67 ára og eldri
Skoða eignina Grandavegur 47
Grandavegur 47
107 Reykjavík
147,4 m2
Fjölbýlishús
522
834 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Birkimói 7
Á einni hæð
Skoða eignina Birkimói 7
Birkimói 7
815 Þorlákshöfn
171,4 m2
Raðhús
523
671 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Asparfell 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Asparfell 2
Asparfell 2
111 Reykjavík
154,7 m2
Fjölbýlishús
625
562 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Víðilundur 8 a
Opið hús:29. okt. kl 16:15-16:45
Skoða eignina Víðilundur 8 a
Víðilundur 8 a
600 Akureyri
84 m2
Fjölbýlishús
312
630 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin