Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, kynna: ***Fjögurra herbergja, 116,8m2, íbúð með sérinngangi*** Rúmgóð og vel skipulögð 116,8m2 íbúð á jarðhæð á þessum eftirsótta og fjölskylduvæna stað á Álftanesi í Garðabæ. Sérinngangur, forstofa, gangur, þrjú svefnherbergi, geymsla, baðherbergi, þvottahús, stofa og borðstofa, sérbakgarður.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS.
Nánari lýsing eignar.
Inngangur. Sérinngangur inn í íbúð. Hellulagt.
Forstofa. Rúmgóð forstofa með glugga. Flísar á gólfi, fataskápur. Hægt að loka forstofunni.
Gangur. Parketlagður.
Stofa/borðstofa. Bjartar og rúmgóðar með parketi á gólfi. Útgengt á verönd úr stofu.
Eldhús. Opið U-laga eldhús með góðri innréttingu. Helluborð, stór loftgleypir. Bakaraofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi. Stórt og rúmgott hjónaherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Barnaherbergi. Tvö rúmgóð barnaherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi. Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og walk in-sturta. Handklæðaofn, upphengt salerni, hlýleg innrétting með speglaskáp.
Þvottahús. Sérþvottahús er innan íbúðar. Flísar á gólfi. Hillur og skolvaskur. Snúrur.
Garður. Sérpallur
Um er að ræða 4-5 herbergja íbúð á þessum barnvæna og eftirsótta stað á Álftanesinu. Örstutt í skóla og leikskóla sem eru í næstu götu. Almenningsbókasafn. Golfklúbbur, útivistarsvæði, íþróttamiðstöð með sundlaug og líkamsræktarstöð. Hestar og náttúrulíf, fjörur og skemmtilegt umhverfi. Sérstaklega gott hverfi fyrir börn til að alast upp í. Sannkölluð sveit í borg eða borg í sveit. Álftanes nýtur góðs af og tekur þátt í miklum uppgangi á hinum ýmsu íþróttagreinum með miklum árangri.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.