Fasteignaleitin
Skráð 14. júlí 2026

Álmakór 19

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
342 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
295.000.000 kr.
Fermetraverð
862.573 kr./m2
Brunabótamat
192.900.000 kr.
Byggt 2014
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
23291403
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Hannes Steindórsson kynnir með stolti: Eitt af fallegri húsum höfuðborgarsvæðisins.
Vandað og fallegt einbýlishús á 1.120 fm lóð við álmakór 19.

Einstök staðsetning, nálægð við náttúru og mikið og falleg útsýni.
78 fm bílskýli með lýsingu og
hleðslustöðvum hluti af húsinu ekki í uppgefinni fm tölu.

Húsið er hannað af Sigurði Hallgrímssyni , innanhússhönnun var í höndum Guðbjargar Magnúsdóttur, lýsingu hannaði Helgi í Lúmex og garðinn,
verandir og ytra umhverfi hannaði Finnur Kristinsson hjá Landslag.

Húsið stendur innst í botnlanga með ósnortna náttúru umhverfis húsið að ofanverðu og stórbrotið útsýni  yfir borgina, til sjávar og fjalla.

Forstofa: Rúmgóð og opin forstofa og hol með innfelldum skápum og góðri lýsingu.
Fataherbergi: Fataherbergi/geymsla fyrir yfirhafnir og skó innaf forstofu.
Svefnherbergi 1: Stórt svefnherbergi með gólfsíðum gluggum og hurð út á vesturverönd, auka 12 fm parketlagt svefnherbergi/fataherbergi inn af herbergi(samtals um 24 fm).
Baðherbergi 1: Flísalagt baðherbergi með  "walk-in" sturtuklefa og innréttingu með miklu skápaplássi.
Svefnherbergi 2: Aukaíbúð/Unglingasvíta : Rúmlega 30 fm svefnherbergi með eldhúsaðstöðu, aðgengi að baðherbergi og útgengi út á verönd.

Breiður og bjartur parketlagður stigi með lýsingu milli hæða, stór og mikill gluggi tryggir birtuflæði inn í bæði rými efri og neðri hæðar.
Efri hæðin er stórglæsileg með mjög mikilli lofthæð, vel skipulögð með stórum gluggum og góðu birtuflæði allan hringinn. 
Einstakt útýni yfir borgina og víðar, rennihurð út stórar á svalir sem liggja meðfram allri norður hlið hússins
.

Eldhús: Vandað eldhús með mikilli innréttingu, stórri eyju með náttúrustein á borði, vönduðum eldhústækjum frá Miele, öflugum háf með útsogi,
tvöföldum ísskápi ásamt vínkæli frá Baco. Útgengt út á verönd úr eldhúsi.
Meðfram eldhúsinu bæði til suðurs og vesturs er harðviðarverönd að hluta til undir skyggni sem tryggir að hægt er njóta útiveru í góðu skjóli nánast allan ársing hring.

Stofa og borðstofa:
Mjög rúmgóðar og bjartar stofur með gólfsíðum gluggum og einstöku útsýni, rennihurð út stórar á svalir með glerhandriði.
Sjónvarpsstofa: Fjölskyldurými með rúmgóðri sjónvarpsstofu er aðeins afstúkað frá opnu alrými stofu og eldhúss.
Svefnherbergi 3: Parketlagt svefnherbergi með skápum.
Svefnherbergi 4: Parketlagt svefnherbergi með skápum.
Svefnherbergi 5: Parketlagt svefnherbergi með sér fataherbergi með góðum hirslum.
Baðherbergi 2: Rúmgott baðherbergi með sérsmíðuðum  innréttingum og stórum "walk-in" sturtuklefa, útgengt á verönd með heitum potti.

Þvottahús: Flísalagt sér þvottahús með góðum innréttingum, vélar eru í vinnuhæð og opnanlegur gluggi ásamt loftræstingu
Verandir og garður: Timburverandir, hellulögn með steyptum veggjum og tröppum umliggja meira og minna allt húsið. 
Geymsla: Innaf bílaplani er innangengt í 27 fm sérgeymslu.
Bílageymsla: Yfirbyggð bílageymsla fyrir þrjá  til fjóra bíla. 
Bílastæði: Að auki við bílageymslu er bílastæði við hlið húss fyrir þrjá til fjóra bíla.
 
Allar upplýsingar veitir : Hannes Steindórsson s. 699-5008 hannes@fastlind.is



 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ystasel 27
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Ystasel 27
Ystasel 27
109 Reykjavík
334.5 m2
Einbýlishús
1248
628 þ.kr./m2
209.900.000 kr.
Skoða eignina Aflakór 15
Heitur pottur
Skoða eignina Aflakór 15
Aflakór 15
203 Kópavogur
261.4 m2
Raðhús
624
650 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Boðahlein 13
Á einni hæð
Skoða eignina Boðahlein 13
Boðahlein 13
210 Garðabær
81.7 m2
Raðhús
211
905 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Fjallakór 6
Bílskúr
Heitur pottur
e
Skoða eignina Fjallakór 6
Fjallakór 6
203 Kópavogur
293.7 m2
Einbýlishús
825
851 þ.kr./m2
249.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin