Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mjög fallega, bjarta og vel skipulagða 105,2 fermetra 4ra herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) með suðursvölum í nýviðgerðu og máluðu fjölbýlishúsi við Álftamýri í Reykjavík auk 20,9 fermetra frístandandi bílskúrs á lóð. Allar raflagnir, tenglar og rofar í íbúðinni voru endurnýjuð árið 2019.
Húsið utan:
2015 - Klóaklagnir undir húsi og út á lóð endurnýjaðar og drenlagnir við hús endurnýjaðar á sama tíma
2019 - Þakborð, þakpappi og þakjárn á húsi voru endurnýjuð
2020 - Múrviðgert og málað og lítur mjög vel út
2024/2025 allt gler, gluggar endurnýjað sem og útihurðir á bakhlið hússins
Stigahús er mjög snyrtilegt og vel umgengið með ruslalúgum undir almennt sorp.
Þakdúkur á bílskúralengju er nýlegur og er starfrækt sér húsfélag fyrir bílskúralengjuna með ágætum leigutekjum af auglýsingum á útvegg þeirra.
Lýsing eignar:
Forstofa / hol, flísa- og parketlagt og með búri innaf.
Eldhús, parketlagt og bjart með góðri borðaðstöðu. Sprautulakkaðar innréttingar með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél.
Þvottaherbergi, með glugga, flísalagt gólf.
Barnaherbergi I, parketlagt og með útsýni út á sjóinn og að Esjunni.
Samliggjandi stofur, stórar, parketlagðar og bjartar með miklum gluggum til suðurs og útgengi á suðursvalir. Mögulegt væri að stúka 1 svefnherbergi af stofu og bæta þannig við 4. svefnherberginu í íbúðinni.
Svefngangur, parketlagður og með innbyggðum fataskápum.
Barnaherbergi II, parketlagt og með útsýni út á sjóinn og að Esjunni.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf, innrétting, skápar, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með útsýni út á sjóinn og að Esjunni.
Fataherbergi, innaf hjónaherbergi, er parketlagt og með föstum innréttingum.
Bílskúrinn er 20,9 fermetrar að stærð og er með gluggum, gönguhurð, bílskúrshurð með mótor, rennandi heitt og kalt vatn, vaskur, hiti og búið að setja upp grunn fyrir rafhleðslustöð.
Í kjallara hússins eru:
Sérgeymsla, sem er 4,9 fermetrar að stærð og með föstum hillum.
Sameiginleg hjólageymsla, með gluggum og útgengi á baklóð hússins.
Sameiginlegt þvottaherbergi, með gluggum, lakkað gólf og allt mjög snyrtilegt.
Sameiginleg geymsla, þar sem hver íbúð hefur sitt geymsluhólf.
Lóðin er fulllfrágengin með malbikuðu bílaplani með fjölda bílastæða, hellulögðum stéttum og stórri tyrfðri baklóð. Stéttar fyrir framan húsið voru hellullagðar árið 2015 og lagðar hitalagnir undir þær.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað miðsvæðis, þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, íþróttasvæði, útivistarsvæði í Laugardalnu, verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is