Fasteignaleitin
Skráð 9. maí 2026

Stórholt 31

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
76.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
61.900.000 kr.
Fermetraverð
807.040 kr./m2
Brunabótamat
43.300.000 kr.
Byggt 1945
Kjallari
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20118671
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Mjög falleg og mikið endurnýjuð 76,7 fm 2ja herbergja íbúð í kjallara í litlu fjölbýli við Stórholt 31. Íbúðin skiptist m.a. í stofu, eldhús/borðstofu, herbergi, baðherbergi, lítið herbergi (geymsla samkvæmt teikningu) og hol. Geymsla undir útitröppum tilheyrir. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara. Sameiginlegur garður með skjólvegg er fyrir framan húsið (til suðvesturs). Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson og Gísla Halldórssyni.

Nánari upplýsingar veita: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, magnea@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali.


Nánari lýsing:
Hol: Komið er inn í rúmgott hol. Gólf er flotað. Fallegur bogadreginn spegill og innbyggð hilla undir honum fylgja með íbúðinni.
Stofa: Rúmgóð og björt parketlögð stofa.
Eldhús/borðstofa: Rúmgott eldhús sem nýtist sem eldhús og borðstofa. Árið 2018 var eldhúsinnrétting endurnýjuð. Falleg hvít innrétting og eyja með barborði. 
Hjónaherbergi: Parketlagt hjónaherbergi. Nýlegar hillur og skúffur eru á einum vegg í herberginu. 
Við hlið hjónaherbergis er lítið herbergi sem mætti nýta sem fataherbergi eða skrifstofu (geymsla samkvæmt teikningu).
Baðherbergi: Baðherbergið var endurnýjað að hluta til árið 2024. Baðkar með sturtu í. Gólf er flotað. Gluggi er á baðherbergi.

Framkvæmdir utanhúss: 
Árið 2023 voru frárennslislagnir endurnýjaðar og sett dren við húsið. Árið 2017 var skipt um járn á þaki hússins (og pappa) og kvistir endurnýjaðir. Á árunum 2007-2010 var húsið endursteinað. Árið 2024 voru raflagnir í sameign í kjallara endurnýjaðar.

Mjög falleg íbúð á vinsælum stað í göngufjarlægð frá miðbænum, Klambratúni og Kjarvalsstöðum. Stutt er í verslanir og alla helstu þjónustu.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Nönnugata 1
Skoða eignina Nönnugata 1
Nönnugata 1
101 Reykjavík
79.1 m2
Fjölbýlishús
312
820 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 8
Skoða eignina Sóltún 8
Sóltún 8
105 Reykjavík
88 m2
Fjölbýlishús
211
908 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Vífilsgata 23
Efsta hæð
Opið hús:28. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vífilsgata 23
Vífilsgata 23
105 Reykjavík
70.1 m2
Fjölbýlishús
311
997 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
92.3 m2
Fjölbýlishús
312
1073 þ.kr./m2
99.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin