ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Kirkjuvegur 29, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 208-9648 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 180.6 fm.
Í hjarta gamla bæjar Keflavíkur stendur þetta einstaka einbýlishús með sjarma og sögulegan blæ. Viðbygging var byggð við húsið 2010 og gefur því mikinn sjarma, þar sem er ný eldhúsinnrétting, harðparket á gólfi, gólfsíðum gluggum og útgengt út í garð sem er algjör paradís, með tjörn, gróðurhúsi og palli með möguleika á heitum potti. Í kjallara er studeóíbúð með sér inngang og möguleika á útleigu.
* Húsið var klætt að utan og þakjárn endurnýjað ásamt gluggum árið 2010.
* Möl er í innkeyrslu en lóð er gróin með geymsluskúr.
* Góð staðsetning í gamla bæ Keflavíkur.
* Snyrtilegur garður með tjörn.
* Lítill geymsluskúr er á lóð og einnig rúmgott gróðurhús.Nánari lýsing eignar:Forstofa er rúmgóð með flísar á gólfi.
Baðherbergi er nýlegt og hefur flísar á gólfi og einum vegg, sturta, baðkar og innrétting við vask.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í viðbyggingu sem bætt var við húsið 2010. Þar er ný eldhúsinnrétting, harðparket á gólfi og gólfsíðum gluggum. 6.metra lofthæð er í þessu rými og útgengt út í garð, algjöra paradís.
Svefnrými er með harðparketi á gólfum og svalahurð út á pall, þar sem er gert ráð fyrir heitum potti.
Svefnherbergi er með parket á gólfi, stiga uppá lítið loft.
Kjallarinn hefur allur verið tekin í gegn, þar er gott svefnherbergi, eldhúskrókur og baðherbergi.
Hann er ekki samþykktur né skráður sem aukaíbúð en bíður uppá ýmsa möguleika, sér inngangur hefur verið gerður að kjallara.
Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergsdóttir Nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 7727930, tölvupóstur halla@allt.isÁsta María Jónasdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 847-5746 , tölvupóstur asta@allt.isMeð því að smella á hlekkinn hér að neðan getur þú nálgast söluyfirlit eignarinnar.
*setja hlekk fyrir söluyfirlit*
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.