VEL STAÐSETT 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ ÁSAMT BÍLSKÚR VIÐ DIGRANESVEG
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími: 588-4477, og Snorri Snorrason, löggiltur fasteignasali, sími: 895-2115, netfang: snorri@valholl.is, kynna: 97,7 fm íbúð með sérinngangi ásamt 26,3 fm bílskúr að Digranesvegi 18 í Kópavogi, samtals 124 fm. Íbúðin er í upprunalegu ástandi, hefur ekki verið viðhaldið og þarfnast endurnýjunar að öllu leyti. Skipt hefur verið um þakjárn á húsinu en ekki bílskúr. Fjölbýlishúsið þarfnast áframhaldandi viðhalds og endurbóta.
Nánari lýsing:
• Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur. Þaðan er aðgengi um steyptan stiga niður í sameign í kjallara.
• Gangur: Án gólfefna.
• Herbergi I: Fataskápur, án gólfefna.
• Herbergi II: Fataskápur, án gólfefna.
• Stofa: Teppi á gólfi, útgangur út á 11,6 fm suðursvalir.
• Eldhús: Eldri innrétting og eldunartæki, vínilflísar á gólfi.
• Baðherbergi: Dúkur á gólfi, hvít hreinlætistæki, baðkar með sturtu.
• Geymsla: 6,3 fm, staðsett í kjallara bílskúrs.
• Bílskúr: 26,3 fm, steyptur með steyptu gólfi og steyptu þaki.
Sér bílastæði er við bílskúr en lóð að öðru leyti sameiginleg.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.