Fasteignaleitin
Skráð 24. ágúst 2026

Fossvegur 4

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
78.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.800.000 kr.
Fermetraverð
637.644 kr./m2
Fasteignamat
47.100.000 kr.
Brunabótamat
55.950.000 kr.
Mynd af Haukur Páll Ægisson
Haukur Páll Ægisson
Fasteignasali
www.primafasteignir.isEignalisti
Byggt 2002
Jarðhæð af 5
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2261922
Landnúmer
188504
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Prima fasteignasala og Haukur Páll Ægisson lgf. kynna í einkasölu Fossveg 4, íbúð 102 á Selfossi. Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotareit að aftan.

Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi með sturtu, stofu, eldhús og geymslu innan íbúðar með glugga sem hægt er að nýta sem leikherbergi eða koma litlu rúmi þar fyrir. Einnig er geymsla á neðri hæð fjölbýlishússins.


Forstofa með fataskáp
Stofa björt og opin við eldhús, útgengt út á sér afnotaflöt út úr stofu
Svefnherbergi rúmgott með stórum fataskáp
Geymsla innan íbúðar með glugga með opnanlegu fagi.
Eldhús með rúmgóðri innréttingu sem er filmuð hvít að lit.
Baðherbergi með sturtu, upphengdum vaskaskáp, upphengdum spegli, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla á neðri hæð hússins.

Virkilega smekkleg eign, stutt í alla þjónustu og tilvalin til fyrstu kaupa.
 
Nánari upplýsingar veita:
Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / haukurpall@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/11/202026.700.000 kr.30.900.000 kr.78.1 m2395.646 kr.
21/08/201820.000.000 kr.24.500.000 kr.78.1 m2313.700 kr.
03/07/200613.850.000 kr.15.500.000 kr.78.1 m2198.463 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stangarbraut 26
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Stangarbraut 26
Stangarbraut 26
805 Selfoss
89.5 m2
Sumarhús
423
994 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Skoða eignina Fjarðarstræti 2
Fjarðarstræti 2
400 Ísafjörður
80.5 m2
Fjölbýlishús
211
458 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Skoða eignina Gullsmári 1
IMG_7173.JPG
Skoða eignina Gullsmári 1
Gullsmári 1
201 Kópavogur
80.1 m2
Fjölbýlishús
312
898 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Fiskakvísl 13
B75A7597.JPG
Skoða eignina Fiskakvísl 13
Fiskakvísl 13
110 Reykjavík
66.5 m2
Fjölbýlishús
312
976 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin