Fasteignaleitin
Opið hús:28. júlí kl 18:00-18:30
Skráð 23. júlí 2026

Fiskakvísl 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
172.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
112.000.000 kr.
Fermetraverð
650.029 kr./m2
Brunabótamat
92.400.000 kr.
Byggt 1983
Jarðhæð
Svalir
Fasteignanúmer
20439251
Húsgerð
Fjölbýlishús

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega 4-5 herbergja útsýnisíbúð á 1.hæð auk bílskúrs í fjögurra íbúða fjölbýlishúsi á vinsælum stað við Fiskakvísl  í Árbænum.

Eignin er skráð hjá HMS samtals 172,3 m2 og skiptist í íbúð á hæð 121,6 m2, herbergi í kjallara./geymsla, 17 m2 og bílskúr 33,7 m2


Íbúðin skiptist í hol, þvottahús, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, stofu og borðstofu. Að auki er svo góð geymsla í kjallara með gluggum sem hægt er að nýta  sem herbergi.

Helstu endurbætur
* 2014 var eldhúsið endurnýjað
* 2015 var baðherbergið endurnýjað
* 2020 var skipt um þakjárn ,þakkant og settar nýjar þakrennur.
* 2021 var skipt um allar innhurðar
* 2021 var lagt vandað Pergo parket á alla íbúðina fyrir utan baðherbergi
* 2025 var skipt um stofugluggana og glugga á geymslu/herbergi.
* 2025 sett ný handrið á svalir og útistiga
* 2026 var skipt um teppi á stigagangi og hann málaður
* 2026 var öll sameign í kjallara máluð


Nánari lýsing eignar.
Hol með innbyggðum fataskáp.
þvottahús  er innaf holi með innréttingu og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús með með fallegri innréttingu með góðu skúffu og skápaplássi, granít borðplötu með innfeldum vaski, Bosch spanhelluborði með Elica háfi yfir og góðum sjálhreinsandi ofni frá Gorenje. Gert er ráð fyrir ísskáp og frysti i innréttingu, stór tækjaskápur með granítborðplötu, lítið eldhúsborð með granítborðplötu .borðkrókur er við útsýnisglugga.
Hjónaherbergi er með fataskáp með rwnnihurðum og útgengi er frá því út á svalirnar.
Tvö rúmgóð barnaherbergi , útgengi frá öðru herberginu út á svalir í norður með útsýni, þar sem m.a.  Esjan, Akrafjall og Skarðsheiðin blasa við. Fataskápur í örðu þeirra.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og þar er góð walk-in sturta, upphengt salerni, innrétting og handklæðaofn.
Björt og samliggjandi stofa og borðstofa með fallegum arni. Útgengt út á stórar flísalagðar suðursvalir.
Stór sérgeymsla /herbergi er í kjallara sem hægt er að nýta  sem herbergi, parket á gólfi og opnanlegur gluggi.
Stór og góður bílskúr með hita, vatni og rafmagni, sjálfvirkum hurðaopnara og innréttingu.

Bílaplanið er hellulagt með snóbræðslu.


Mjög góð staðsetning efst í Ártúnsholtinu þar sem stutt er í þjónustu af ýmsu tagi svo sem verslanir, skóla, leikskóla ofl. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vættaborgir 1
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:27. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vættaborgir 1
Vættaborgir 1
112 Reykjavík
103.6 m2
Fjölbýlishús
413
752 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Strandasel 2
Skoða eignina Strandasel 2
Strandasel 2
109 Reykjavík
82.6 m2
Fjölbýlishús
312
714 þ.kr./m2
59.000.000 kr.
Skoða eignina Stekkjarland 8
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Stekkjarland 8
Stekkjarland 8
800 Selfoss
161.6 m2
Parhús
514
575 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Tangabryggja 18
Opið hús:29. júlí kl 16:30-17:00
IMG_2265.jpeg
Skoða eignina Tangabryggja 18
Tangabryggja 18
110 Reykjavík
45.8 m2
Fjölbýlishús
211
1081 þ.kr./m2
49.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin