Eignaland fasteignasla kynnir í einkasölu Akurhóla 6, 800 Selfossi.
Um er að ræða endaíbúð á á 2.hæð með sérinngangi, samtals 77,4 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Húsið er byggt árið 2017.
Íbúðin, sem er skráð 74,7 m2, telur forstofu, alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu ásamt 2,7 m2 geymslu og hjóla- og vagnageymslu. Svalir snúa út bakgarðinn sem er í suður.
Leikskólinn Jötunheimar er í göngufæri sem og Sunnulækjarskóli. Stutt í aðra leik- og grunnskóla líka.
Fasteignamat er kr. 46.550.000,-
ÍBÚIÐIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING.Nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Fannar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í síma 897-5930, eða siggifannar@eignaland.is. Lýsing eignar:Forstofa með fataskáp. Flísar á gólfi.
Alrými með parketi á gólfi.
Hjónabergi á hægri hönd, góðir fataskápar, parket á gólf og gluggi til norðurs.
Baðherbergi með baðkari, innréttingu með handlaug, upphengt wc.
Þvottahús er inn af baðherbergi. Tengi fyrir þvottavél.
Eldhús með góðri innréttingu, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð í eldunareyju og háfur yfir. Gluggar til austurs.
Stofa með útgengi á svalir sem snæua út í bakgarð.
Barnaherbergi er við hlið stofu með glugga til suðurs er merkt sem geymsla á teikningu.
Geymsla merkt 0107 á teikningu (merkt 0101 á hurð) fylgir einnig en hún er staðsett inn af hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð hússins.
Gólfefni:Flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Parket á herbergjum, alrými, eldhúsi og stofu.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Fannar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í síma 897-5930, eða siggifannar@eignaland.is.