Fasteignasalan Hvammur
466-1600Stekkjartún 20 íbúð 104 - Snyrtileg 3-4ra herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð í góðu fjölbýli í Naustahverfi - Stærð 87,2 m² Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, tvö svefnherbergi og geymslu sem getur nýst sem þriðja svefnherbergið.
Forstofa er með flísum á gólfi og ljósum fataskáp .
Stofan er björt með harðparketi á gólfi. Þaðan er gengið út á góða verönd með skjólveggjum.
Eldhús er með með góðri spónlagðri innréttingu og ljósum efri skápum. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með við sölu. Harðparket er á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með spónlagðri innréttingu, vegghengdu wc, walk-in sturtu og handklæðaofni.
Þvottahús er inn af forstofu. Þar eru góðar vegghillur, ljós innrétting með skolvask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar eru á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 12,6 og 9,4 m².
Geymsla hefur verið nýtt sem auka svefnherbergi eða skrifstofa. Harðparket á gólfi og fataskápur. Stærð geymslu er 7,6 m² skv. teikningum
Annað- Sameiginleg geymsla/inntaksrými er á jarðhæð
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur
- Eign á vinsælum stað, í grennd við skóla og leikskóla.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.