ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu:Vatnsstíg 20-22, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-05, fastanúmer 229-7974 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Um er að ræða vandaða tveggja herbergja, 74,6 fm íbúð á 2. hæð, Íbúðin skiptist í stofu, eldhús og borðstofu í opnu rými, rúmgott svefnherbergi með góðum klæðaskápum, baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, þvottahús og svalir til suðurs sem eru að stærðinni 11,7 fm.
Íbúðinni fylgir sér geymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir:
Halla Vilbergsdóttir nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is.
Unnur Svava Sverrisdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 686-2555, tölvupóstur unnur@allt.isMeð því að smella á hlekkinn hér að neðan getur þú nálgast söluyfirlit eignarinnar.
*setja hlekk fyrir söluyfirlit*
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Með góðum sérsmíðuðum klæðsaskáp og parket á gólfi.
Eldhús: Hefur fallega innréttingu með eyju og fallegri borðplötu úr gráum stein. Parket á gólfi.
Stofa: Er í opnu rými með eldhúsi, dökkum sjónvarpsskáp í stíl við eldhúsinnréttingu, 11,7 fm svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi: Er rúmgott með góðum klæðaskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, með fallega innréttingu og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús: Er flísalagt, innrétting með vask og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Lofthæðin í íbúðinni er um 2,7 metrar. Gólfhiti er í öllum rýmum. Innréttingar eru sérsmíði frá GKS trésmiðju. Eldhústæki eru frá Miele. Íbúðin er staðsett í Skuggahverfi þar sem stutt er í iðandi mannlíf og alla þjónustu. Í göngufæri við helstu verslanir, veitingastaði og afþreyingu af ýmsu tagi, hvort sem horft er til miðborgarinnar, Grandagarðs, Skólavörðuholtsins og víðar.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.