Fasteignaleitin
Skráð 28. okt. 2026

Eiríksgata 37

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
1,340 m2
Verð
550.000.000 kr.
Fermetraverð
410.448 kr./m2
Brunabótamat
388.300.000 kr.
Miklaborg
http://www.miklaborg.is
Byggt 1933
Svalir
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2008916
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Margir inngangar

Miklaborg kynnir: Miklaborg kynnir: Fasteign sem er skráð hjá HMS sem þrjár eignir og er með þremur fastanúmerum. Þessar fasteignir hafa verið notaðar sem ein eining undanfarin ár. Tveir inngangar eru frá Þorfinnsgötu og áður var einnig inngangur frá Eiríksgötu, þar er nú bílskúr með fleka í stað hurðar.. Eignirnar eru skráðar sem sjúkrahús. Þessar fasteignir sem seljast í einu lagi bjóða upp á ýmsa möguleika og eru spennandi fjárfestingarkostur.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Eiríksgata 37, fnr. 200-8916, mhl. 030101, birt stærð 447 fm., byggingarár 1933, heildarfasteignamat: kr.90.300.000.-, brunabótamat: Kr. 133.300.000.-

Þorfinnsgata 14, fnr. 200-8914, mhl. 010101, birt stærð 450 fm., byggingarár 1936, heildarfasteignamat: kr. 91.100.000.-, brunabótamat: kr.134.500.000.-

Þorfinnsgata 16, fnr. 200-8915, mhl.020101, birt stærð 443 fm., byggingarár 1938, heildarfasteignamat kr. 83.200.000.-, brunabótamat: kr.120.500.000.-

Hver eign hefur sinn inngang. Rúmgóð og snyrtileg lóð er í kringum húsið. Húsið er þrjár hæðir ásamt kjallara. Rishæðin er að hluta til undir súð. Hæðirnar eru með kerfisloftum og vöskum í flestum herbergjum. Dúkur er á öllum gólfum. Gengið er út á vestursvalir af hæðunum með útsýni að Hallgrímskirkju. Einnig eru minni svalir sem snúa í suður á 3ju hæð. Á kaffistofu á 3ju hæð eru gluggar nýlegir. Á hverri hæð eru 8-14 herbergi þ.e. sjúkrastofur, skrifstofur, skurðstofur, geymslur, búningsklefar, snyrtingar og kaffistofur.Rúmgóð sjúkralyfta er við aðalinngang að Eríksgötu 37 með tveimur inngangsleiðum ásamt flísaslögðum bílskúrsinngangi fyrir sjúkrabíla. Rishæðin er mikið undir súð austan megin og komið er að viðhaldi á þakgluggum. Þar eru 10 skrifstofur, fundarherbergi, snyrting og eldhús.Í kjallara eru geymslur, lagerrými, tæknirými og snyrtingar ásamt búningsklefa fyrir starfsfólk. Gólfin eru lökkuð. Innangengt er á milli kjallara frá Þorfinnsgötu 14-16 og útgangar í port í báðum hlutum. Ekki er full lofthæð í kjallara.Eignin hefur fengið þokkalegt viðhald í gegnum árin og búið er að endurnýja ofna, ofnalagnir, neysluvatnslagnir, rafmagnstengla og lagnaefni. Gluggalistar, botnstykki og gler í gluggum hafa fengið einhverja endurnýjun en þarfnast lagfæringa að hluta. Rennur og niðurföll virðast vera í góðu lagi en sjáanlegt ryð er á þakjárni. Þörf er á endurbótum á veggjum húsnæðisins að innan. Til hliðsjónar við mat þetta er skýrsla frá verfræðistofunni Mannvit dags.12.04.2014. þar kemur fram að greinst hafi raki og mygla og lagt var til í hvaða úrbætur þyrfti að fara til að koma eigninni í gott ástand. Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Faxafen 7
Skoða eignina Faxafen 7
Faxafen 7
108 Reykjavík
1.243 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 363.800.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 305
Opið hús:01. nóv. kl 13:00-13:30
stebbi_vefur (28).png
Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 305
101 Reykjavík
121,2 m2
Fjölbýlishús
312
1073 þ.kr./m2
130.000.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 21
Skoða eignina Sólvallagata 21
Sólvallagata 21
101 Reykjavík
49,9 m2
Fjölbýlishús
211
1032 þ.kr./m2
51.500.000 kr.
Skoða eignina Öldugrandi 11
Skoða eignina Öldugrandi 11
Öldugrandi 11
107 Reykjavík
56,3 m2
Fjölbýlishús
211
1064 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin