LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3 herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð með sérinngang í nýlegu lyftuhúsi við Álfhólsveg í Kópavogi þar sem stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Eigninni fylgja tvö merkt bílastæði í bílskýli þar sem búið er að leggja hleðslustöðvum.
Birt stærð eignar er 101.6 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 9,2 fm. geymsla á jarðhæð.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og geymslu á jarðhæð en henni fylgja tvo merkt bílastæði í bílskýli.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús með ljósri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa, bjart opið rými með miklu útsýni, parket á gólfi, útgengt á rúmgóðar svalir.
Hjónaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt með ljósri innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtustöng.
Þvottahús innan íbúðar, með innréttingu og vask, flísar á gólfi.
Geymsla með glugga á jarðhæð.
Bílastæði, tvö merkt stæð í bílskýli, merkt 01B006 og 01B007. Stæðin eru hlið við hlið og búið að leggja fyrir hleðslustöðvum.
Húsgjöld eignar eru 43.595 kr. á mánuði og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, allur hiti, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatrygging, framkvæmdasjóður og þjónustukaup vegna reksturs húsfélags.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.