Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Hrafnagilsstræti 12 - Virðulegt 5 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum í fúnkisstíl á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 139,9 m² auk um 15 m² gestahús, samtals um 155 m²
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð - 73,0 m²: Forstofa, gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og saunaherbergi.
Efri hæð - 66,9 m²: Stofa og borðstofa, eldhús og tvö svefnherbergi.
Forstofa og gangur eru með flísum á gólfi. Af ganginum liggur parketlagður stigi upp á efri hæðina.
Eldhús, spónlögð eikar innrétting með mosaík flísum á milli skápa og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými, með parketi á gólfi og góðum gluggum til þriggja átta. Kamína er í stofunni.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, með ljósri sprautulakkaðri innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni og walk-in sturtu. Hurð er inn á baðherbergi inn í geymslu sem er undir stiga.
Svefnherbergin eru fjögur, tvö ágætlega rúmgóð á neðri hæðinni, bæði með parketi á gólfi og fataskápum og tvö á efri hæðinni, eitt með parketi á gólfi og hurð út á steyptar suðvestur svalir og annað minna með koju.
Saunaherbergið hefur nýlega verið tekið í gegn, dökkar flísar á gólfum og veggjum og viðarklæðning í loftum. Skemmtilegt seturými með kamínu og sauna með gólfsíðu gleri.
Þvottahús getur nýst sem annar inngangur fyrir eignina, þar er lakkað gólf, opnanlegur gluggi og stálvaskur.
Um 15 m² gestahús er á baklóðinni sem hefur nýlega verið gert upp á smekklegan hátt að innan. Ljóst harð parket á gólfum og loft eru tekin upp. Baðherbergi er með ljósu harð parketi á gólfi, wc, sturtu og dökkri innréttingu. Samþykktar teikningar eru til af húsinu.
Annað
- Gólfhiti er í hluta af neðri hæðinni.
- Búið er að endurnýja hluta af gleri.
- Búið er að endurnýja rafmagnstöflu og hluta af raflögnum.
- Fyrir framan húsið er timbur verönd með skjólveggjum og heitum potti. Stýring er á pottinum og er hún staðsett í þvottahúsinu.
- Húsið var múrviðgert og málað að utan sumarið 2024.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.