Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu, kynnir fallega 3ja herbergja íbúð á jarðhæð að Skipasundi 84 í Reykjavík. Íbúðin er í þríbýlishúsi. Garður er stór og gróinn í skjólsælu hverfi. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, hverfaverslun o.fl. þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu, bjarta og góða stofu, eldhús, tvö stór svefnherbergi með fataskápum, gang og baðherbergi auk geymslu í sameign og sameiginlegs þvottahúss. Íbúðin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 70,5 m2. Hér má sjá 3D af íbúðinni:Nánari lýsing:Forstofuhol er inn af anddyri við útidyrahurð. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt gólf sem flæðir um flest rými og er án þröskulda. Parket var lagt nýtt fyrir um fimm árum.
Stofa er með gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri eldhúsinnréttingu og háf. Helluborð var endurnýjað 2022. Stæði og tengi fyrir uppþvottavél er inni í innréttingu sem fylgir með. Ísskápur getur einnig fylgt. Dökkar korkflísar á gólfi.
Herbergi I er rúmgott með hvítum viðarfataskápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi II er með ljósum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með sturtuklefa og nýlegu salerni. Handlaug í hvítri innréttingu. Veggfestur speglaskápur yfir handlaug og innfelldur skápur bak við hurð. Gráar veggflísar.
Geymsla er skv. teikningum þar sem nú er svefnherbergi. Rými undir stiga í sameign nýtist sem geymsla.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni - hver með sína vél.
Garður er stór og gróinn. Seljandi hefur aðeins búið í eigninni í stuttan tíma og byggir lýsinguna á henni að hluta á upplýsingum frá fyrri eiganda. Talið er að skipt hafi verið um frárennsli að hluta og fóðrað og frárennslislagnir myndaðar og skolað út úr þeim í kringum 2014. Ofnar í íbúð hafi verið endurnýjaðir 2014. Rafmagn endurnýjað að hluta á árunum 2003-2007 og voru þá tenglar endurnýjaðir samhliða sem og rafmagnstafla. Á þeim árum hafi einnig verið skipt um gler í íbúð. Húsið hafi verið múrviðgert og málað árið 2015.
Skipasund 84 er frábærlega staðsett hús í nágrenni við Laugardalinn, sundlaug, skóla, verslun og þjónustu. Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212 / to@remax.is.Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu 69.900 m. vsk.