Fasteignaleitin
Skráð 15. apríl 2025

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

ParhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
132 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
64.200.000 kr.
Fermetraverð
486.364 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
100150426
Landnúmer
0
Húsgerð
Parhús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Góð verönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT PARHÚS Á EINNI HÆÐ Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM*

FRÁBÆR KAUP.
Vandað og fallegt hús á einni hæð á frábærum stað í lokuðum botlanga í Encina hverfinu á Las Colinas golfvellinum. Fallegt gróið umhverfi, mjög prívat staðsetning þar sem hægt er að njóta lífsins í ró og næði. Stór einkagarður og aðgangur að góðum sameiginlegum sundlaugargarði, sem er sameiginlegur með nokkrum húsum í kring. 
Las Colinas golfsvæðið hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er því hér um einstakt tækifæri að eignast vandað og gott hús á þessum vinsæla stað á frábæru verði. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
GOTT SKIPULAG,  þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu.  Stór sólverönd framan við húsið sem hægt er að opna vel út í garðinn, sem snýr í suður.
Frábær sólbaðsaðstaða bæði í garðinum og í notalegum sameiginlegum sundlaugargarði.
Einstakt gróið umhverfi, með allt það besta sem Las Colinas hefur upp á að bjóða rétt við þröskuldinn.  Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495. 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is.  0034 615 112 869. 

Nánari lýsing:


Gott flæði er í húsinu. Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt opnu eldhúsi. Útgengi út i bakgarð frá eldhúsinu. Þrjú svefnherbergi og tvö  baðherbergi. Þaðan er útgengi út í garð.

Húsið er mjög prívat og vel staðsett í fallegu grónu umhverfi. Garðurinn er stór og hægt að setja einkasundlaug.

Sér bílastæði.
Möguleiki á miðstöðvarhitun.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða góða eign á frábærum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð 469.000 evrur  + kostn. (64.200.000 ISK + kostn,  gengi 1Evra=138ISK)

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Húsið er í endursölu, en er í ágætu ástandi.
Húsið selst með húsgögnum og húsbúnaði.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.12%.

Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, air con,  golf, 
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
100150426

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðargata 21
Skoða eignina Hlíðargata 21
Hlíðargata 21
740 Neskaupstaður
118,2 m2
Fjölbýlishús
313
321 þ.kr./m2
37.900.000 kr.
Skoða eignina Efstagerði 3
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Efstagerði 3
Efstagerði 3
730 Reyðarfjörður
144,6 m2
Raðhús
413
470 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Reynidalur 2 (301)
Efsta hæð
Reynidalur 2 (301)
260 Reykjanesbær
109,1 m2
Fjölbýlishús
413
665 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 9
Opið hús:27. okt. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Strandvegur 9
Strandvegur 9
210 Garðabær
118 m2
Fjölbýlishús
412
931 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin