Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vandaða, bjarta og vel skipulagða 130,5 fermetra 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með rúmgóðri verönd til suðurs í fallegu og vönduðu arkitekta-teiknuðu húsi með 10 íbúðum í við Urriðaholtsstræti í Garðabæ. Sér bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Eignin er staðsett mjög nærri þremur leikskólum sem eru í hverfinu, Urriðaholtsskóla, verslanir, þjónustu og golfvelli Oddfellow, GKG og Setbergs eftir nýlega opnun úr Urriðaholtinu inn á Flóttamannaveginn. Auk þess er verið að klára sundlaug með heitum pottum við Urriðaholtsskóla.
- Aukin lofthæð, 2,8 metrar, og innfelld lýsing í loftum
- Gólfhitakerfi er í öllum rýmum íbúðarinnar
- Allar innréttingar eru af mjög vandaðri gerð og ná allar upp í loft
- Kvartsteinn á borðum í eldhúsi, innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar og innbyggður ísskápur með frysti
- Bæði baðkar og flísalögð sturta í baðherbergi og vönduð tæki
Lýsing eignar:
Forstofa / gangur, parketlagður og með fataskápum og útskoti fyrir borð eða stól.
Barnaherbergi I, 11,0 fermetrar að stærð, parketlagt og með fataskápum.
Barnaherbergi II, 11,0 fermetrar að stærð, parketlagt og með fataskápum.
Hjónaherbergi, 15,0 fermetrar að stærð, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, baðkar með flísalögn í kring, flísalögð sturta með sturtugleri, innrétting, handklæðaofn, vegghengt wc og vönduð tæki.
Þvottaherbergi, innaf baðherbergi, með miklum innréttingum og skápum og vaski.
Stofa, mjög stór, björt og parketlögð með gluggum til norðurs, austurs og suðurs og útgengi um stóra rennihurð til suðurs á afgirta viðarverönd og þaðan á lóð.
Eldhús, parketlagt og bjart, opið við stofu og með mjög fallegum og vönduðum hvítum innréttingum og eyju með kvartsteini á borðum. Vönduð AEG tæki í eldhúsi, tveir ofnar, innbyggður ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél.
Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri, upphitaðri og loftræstri bílageymslu þar sem búið er að setja upp rafhleðslustöðvar við hvert stæði.
Sérgeymsla, 8,5 fermetrar að stærð og með góðri lofthæð.
Sameiginleg vagnageymsla
Sameiginleg hjólageymsla
Húsið að utan er klætt með áli og gluggar eru ál/tré þannig að húsið er viðhaldslítið.
Rafmagnsopnun er á öllum hurðum í sameign og mynddyrasímakerfi með talnakóda inn í húsið fyrir eigendur.
Lóðin er fullfrágengin með fjölda hellulagðra bílastæða, góðri aðkomu og tyrfðum flötum.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, verslanir, þjónustu, falleg útivistarsvæði og Golfvöll Oddfellow.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is