Fasteignaleitin
Skráð 12. ágúst 2025
Deila eign
Deila

Víðiholt 7

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
177.9 m2
5 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
129.500.000 kr.
Fermetraverð
727.937 kr./m2
Fasteignamat
91.800.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2527605
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Guðný Ösp, lgf. s. 665-8909 og Fasteignasalan TORG kynna fallega hönnuð 6 herbergja raðhús á besta stað á Álftanesi. 
-  Bókið skoðun - sýnum alla daga eftir þörfum ---
Húsin eru glæsilega hönnuð með allt að fimm svefnherbergjum á tveimur hæðum  Inngarðar veita fallega birtu inn í alrými hússins. 
Húsin afhendast fullkláruð án gólfefna skv. skilalýsingu. 
*** FALLEGT ÚTSÝNI// EIGNIN ER STAÐSETT Í FREMSTU RAÐHÚSALENGJUNNI NÆRRI FJÖRUNNI***

Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá Guðný Ösp Ragnarsdóttur, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is

 - Heimasíða verkefnis (smella hér) - Google Maps staðsetning smella hér

Sveit í borg er réttnefni fyrir Álftanesið. Húsið eru staðsett steinsnar frá gylltri fjörunni og sannkölluð paradís fyrir náttúruunnendur. Sú nýlunda að í miðju hvers húss er garður sem hleypir inn birtu, svæði þar sem hægt er að tengja við náttúruöflin og ná jafnvægi eftir eril dagsins.

Í þeim tilfellum sem ekki eru komnar innréttingar er hægt að velja á milli þriggja tegunda:
Dökk : Perfect Matte Laminated MDF (Egger U999 PM)
Ljós : Perfect Matte Laminated MDF (Egger U702 PM)
Dark Oak : Dark Oak Veneer; Handles milled in the fronts - (með aukakostnaði 1.000.000 kr. þessi innrétting er í sýningarhúsi)
------
Nánari lýsing;
* Möguleiki á fimm svefnherbergjum
* Tvö baðherbergi, tvær sturtur ásamt baðkari.
* Sér þvottahús
* Gólfhiti á neðri hæð og baðherbergi á efri hæð.  Ofnar í herbergjum.
* Falleg Innrétting og eldunareyja í eldhúsi frá innréttingarframleiðandanum Voké-III úr Perfect Matte Laminated MDF. Hægt verður að velja um tvo liti. Borðplötur í eldhúsi eru úr
kvartzsteini frá Technistone
* Íbúðir eru loftræstar með vélrænni loftræsingu með sjálfstæðum loftræstisamstæðum fyrir hvert hús.
---  Óskið eftir skilalýsingu fyrir nánari upplýsingar ----

Víðiholt er staðsett á eftirsóknarverðum stað, miðsvæðis á Álftanesi. Svæðið er nálægt grunnþjónustu, s.s skóla, leikskóla, almenningssamgöngum, íþrótta- og útivistarsvæði og má segja að hverfið sé sveit í borg þar sem hesthúsahverfið við Breiðumýri þar sem Sóti hestamannafélag hefur aðsetur er í mikilli nálægt. Svæðið afmarkast af Breiðumýri til norðausturs og hesthúsasvæði til norðvesturs. Að sunnan nær svæðið að íbúðarbyggð við Asparholt og Lyngholt. Aðkoma að svæðinu er um Breiðumýri. Á svæðinu verða 2 fjölbýlishús með 25 íbúðum hvort um sig, 1 parhús og 18 raðhús. Áhersla er lögð á að byggðin myndi skjólgóð og falleg græn svæði til almennra nota.
-------
Víðiholt 2-24 samanstendur af einu parhúsi, þrem lengjum af 5 eininga sambyggðum raðhúsum og einni lengju af 3 eininga sambyggðum raðhúsum. Uppbygging húsanna er úr krosslímdum timbureiningum sem eru einangruð að utan og klædd með veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu. Leitast er við að nýta vel hvern fermeter og er innra skipulag sveigjanlegt.  Komið er inn um aðalinngang inn í anddyri þar sem er gestasalerni og geymsla, frá anddyri er komið inn í alrými þar sem stigi bindur saman hæðir og eldhús, stofa og borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými. Stórir gluggar veita birtu inn í stofu og borðstofu. Á fyrstu hæð er einnig gestaherbergi/skrifstofa og útigeymsla með sér inngangi. Á efri hæð er sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og 3 herbergi. Stigi og stórir gluggar veita birtu á milli hæða um ljósgarð sem er á milli húsa.
------
Útveggir raðhúsa eru úr CLT krosslímdum timbureiningum, einangraðir að utan og klæddir með viðhaldslítilli álbáru í hvítum lit og timbri á völdum stöðum í gráum lit sem sameina fallegt útlit, endingu og þol gagnvart íslenskri veðráttu. Þök á húsunum eru einhalla úr CLT einingum með pappalagi, einangrun og ásoðin tvö pappalög. Þak er frágengið með úthagatorfi.  Svalir og svalahandrið eru úr heitgalvaniseruðu stáli.  Gluggar eru verksmiðjuframleiddir ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Rationel með slitinni kuldabrú. Gler er tvöfalt k-einangrunargler. Útihurðir eru einnig frá Rationel.  Utanhúss lýsing er samkvæmt teikningum raflagnahönnuðar. Vönduð led útilýsing er undir milliplötu við aðkomu/bílastæði. Útilýsing er á vegg í inngarði og garði ásamt útitengli.  Ídráttarleið er fyrir rafhleðslustöð frá aðaltöflu að útvegg við aðkomu/bílastæði. Ídráttarrör fyrir rafmagn er frá aðaltöflu að verönd.  Lóð umhverfis húsið verður jöfnuð í rétta hæð og þökulögð. Bílastæði og aðkoma verða hellulögð. Inngarður er frágengin með hellum. Snjóbræðsla er í bílaplani, aðkomu og inngarði. Sólpallur/verönd/skjólveggur fylgir ekki. Ídráttarrör fyrir vatnslögn er frá inntaksgrind að verönd.
----
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víðiholt 15
Skoða eignina Víðiholt 15
Víðiholt 15
225 Garðabær
179.9 m2
Raðhús
524
767 þ.kr./m2
138.000.000 kr.
Skoða eignina Víðiholt 7
Skoða eignina Víðiholt 7
Víðiholt 7
225 Garðabær
177.9 m2
Raðhús
54
728 þ.kr./m2
129.500.000 kr.
Skoða eignina Víðiholt 10 Endahús
Víðiholt 10 Endahús
225 Garðabær
180 m2
Raðhús
625
750 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Skoða eignina Víðiholt 7 Raðhús
Víðiholt 7 Raðhús
225 Garðabær
177.9 m2
Raðhús
625
728 þ.kr./m2
129.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin