RE/MAX og Vilhelm Patrick Bernhöft löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:1.440,7 fm lager-, iðnaðar, og skrifstofuhúsnæði á Bæjarflöt 4 í Grafarvogi í Reykjavík.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 1.440,7 fm.
Um er að ræða atvinnuhúsnæði á Bæjarflöt 4 í Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 010101 og 010102 með fastanúmerið
224-0098 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindi.
Húsið stendur á stórri 3800 fm malbikaðri lóð á góðum stað í flatahverfinu í Grafarvogi.
Húsið er klætt að utan og viðhaldslétt. Að innan er húsið fullfrágengið.
Húsinu er skipt í tvær einingar og eru annar hlutinn leigður út og núverandi eigandi með hinn hlutann.
Í suðurhluta hússins er leigutaki með aðstöðu og skiptist hún m.a. í móttöku og afgreiðslurými, eldhús, snyrtingar, skrifstofu og vinnusal. Lofthæð er góð (ca. 8 m undir mæni og 5 metrar undir þakbrún) og lýsing einnig. Gólf eru máluð og með niðurföllum. Á suðurhlið eru innkeyrsluhurðir.
Í norðurhluta hússins er núverandi húseigandi með aðstöðu. Það húsnæði skiptist í skrifstofur, starfmannaaðstöðu og vinnu- og lagersal. Innkeyrsluhurð er á salnum. Lofthæð er góð eða ca. 8 m undir mæni og 5 metrar undir þakbrún.
Góð malbikuð lóð. Góð aðkoma. Hentar vel undir ýmiskonar atvinnurekstur.
Húsið er með kvöð um virðisaukaskatt sem kaupandi yfirtekur.
Allar nánari upplýsingar veitir Vilhelm Patrick Bernhöft löggiltur fasteignasali s:
663-9000 eða á vilhelm@remax.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Starfsmanni fasteignasölunnar hefur ekki verið bent á aðra galla á eigninni en fram koma í söluyfirliti þessu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum.
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk Til leigu um 578 m² skrifstofu-, lager- og iðnaðarhúsnæði á góðum stað við Bæjarflöt í Reykjavík. Mögulegt er að bæta við 240 m² millilofti en ekki er nauðsynlegt að taka það með.