Fasteignaleitin
Skráð 13. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Njálsgata 87

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
66.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.600.000 kr.
Fermetraverð
1.015.015 kr./m2
Fasteignamat
50.900.000 kr.
Brunabótamat
33.800.000 kr.
Friðrik Þ Stefánsson
lögmaður og lögg.fs.
Byggt 1939
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2008318
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
10301
Vatnslagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Raflagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Svalir
1
Lóð
11.35
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir mikið endurnýjaða og vel skipulagða 3 - 4 herbergja 66,6 fm2 íbúð á 3. hæð við Njálsgötu í hjarta Reykjavíkur.  Íbúðin hefur nýlega verið tekin alfarið í gegn þar sem eldhús, baðherbergi, innréttingar og gólfefni voru endurnýjuð. Með íbúðinni fylgir 28,9 fermetra geymsla undir súð og telja aðeins 0.4 m2 af henni í fermetratölu íbúðar. Þá er í kjallara hússins sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla

Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga hjá Friðrik í s. 616 1313


Nánari lýsing: Gengið er inn í anddyri íbúðar af stigapalli í snyrtilegri sameign. Barnaherbergi með tveimur skápum er á vinstri hönd og baðherbergi sem hefur verið stækkað frá upprunalegu skipulagi, á þá hægri. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara í baðherbergi. Sturta er flísalögð og klósett upphengt. Við tekur alrými með stórri eldhúsinnréttingu með vönduðum tækjum og er uppþvottavél  innbyggð í innréttingu. Útgengi er á svalir til norðausturs. Inn af alrými er gott hjónaherbergi sem snýr út að garði með stórum sérsmíðuðum  fataskápum. Lítil stofa með vænghurðum og frönskum gluggum er þar við hlið. Stofan gæti nýst sem 3ja svefnherbergi og alrými sem eldhús, borðstofa og stofa. Innra skipulag íbúðar hefur verið mikið breytt og er það því ekki í samræmi við samþykktar teikningar. Teikningar af nýju innra skipulagi fylgja með kaupum. Gólfefni íbúðar er kork parket með eikaráferð, með hljóðeinangrandi undirlagi. 

Af stigapalli er gengið upp á risloft þar sem eru geymslur fyrir íbúðir hússins, ásamt sameiginlegu rými. Allt undir súð. Geymsla íbúðar á rislofti er 28,9 m2 að grunnfleti skv. HMS. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.

Íbúðin er mikið endurnýjuð. Allar innréttingar, tæki og gólfefni hafa verið endurnýjuð, sem og tenglar og raflagnir að hluta. Flestir ofnar hafa verið endurnýjaðir. Gluggar og gler íbúðar hefur einnig verið endurnýjað. Þá var múr og steining húss yfirfarin 2015 og rennur endurnýjaðar 2020.

Frábær eign fyrir fyrstu kaupendur og þá sem eru að leita að íbúð með 2 til 3 svefnherbergi á þessum vinsæla stað í hjarta borgarinnar. Stutt er í alla þjónustu, verslanir, sundlaug, leikskóla, skóla og íþróttasvæði Vals að Hlíðarenda. Þá er góð nálægð við miðbæ borgarinnar. Allar nánari upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og löggiltur fasteignasali í s. 616 1313 eða fridrik@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/02/201622.600.000 kr.30.000.000 kr.66.6 m2450.450 kr.
16/07/201417.700.000 kr.23.350.000 kr.66.6 m2350.600 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringbraut 99
Skoða eignina Hringbraut 99
Hringbraut 99
101 Reykjavík
79.3 m2
Fjölbýlishús
312
818 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 86
Skoða eignina Njálsgata 86
Njálsgata 86
101 Reykjavík
81.9 m2
Fjölbýlishús
414
849 þ.kr./m2
69.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V3 íb 104
Vesturvin V3 íb 104
101 Reykjavík
71.3 m2
Fjölbýlishús
211
979 þ.kr./m2
69.800.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin 3 - 103
0R1A6931-Edit (1).jpg
Vesturvin 3 - 103
101 Reykjavík
57.1 m2
Fjölbýlishús
211
1186 þ.kr./m2
67.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin