Fasteignaleitin
Skráð 3. júlí 2026

Vallárvegur 1

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
76.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
651.436 kr./m2
Brunabótamat
54.350.000 kr.
Byggt 2009
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23181701
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Heimili fasteignasala kynnir til sölu Vallárveg 1: Fallegur 76,6 m2 bústaður á 4.750 fm leigulóð meðfram Vallá í Brekkuskógi í nágrenni Syðri-Reykja og Laugarvatns í Bláskógarbyggð. Bústaðurinn er byggður árið 2009 og samanstendur af anddyri, þremur svefnherbergjum, eldhúsi, stofu, baðherbergi og þvottahúsi í sér rými. Aukin lofthæð er í bústaðnum og honum tilheyrir ca. 130 fm timburverönd með heitum potti. Fallegur bústaður á vinsælu sumarhúsasvæði í rétt um klst. akstri frá Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is

Nánari lýsing.
Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur og fatahengi.
Svefnherbergi 1: Parket á gólfi, fataskápur innan herbergis og gluggar á tvo vegu.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi, fataskápur innan herbergis.
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi, kojur með svefnplássi fyrir allt að fjóra.
Baðherbergi: Falleg innrétting, vegghengt WC, handklæðaofn og sturtuklefi. Á gólfi og á veggjum eru flísar og frá baðherbergi er útgengt á veröndina.
Stofa og eldhús: Eru í opnu rými þar sem er aukin lofhæð, gluggar á þrjá vegu og útgengi á verönd bústaðarins. Í eldhúsi er ágæt innrétting og flísar á gólfi. Í stofu er parket á gólfi. 
Þvottahús: Í sér rými sem gengið er inn í frá verönd. Þar er ágæt innrétting, góð vinnuaðstaða og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi eru flísar.     
Bústaðnum tilheyrir stór verönd með heitum potti. 

Á svæðinu er rafmagnshlið með öryggismyndavél. Leiksvæði hjá BHM þar sem allir eru velkomnir. Sumarhúsafélag er á svæðinu. Í nágrenni við Brekkuskóg er að finna margar helstu náttúruperlur á Suðurlandinu, t.d. Brúarárfoss, Efsti-dalur og Gullfoss og Geysir auk þess sem margar fallegar gönguleiðir eru á svæðinu. Má þar nefna Brúarárskörð, Bjarnarfell og Haukadal.
Þá eru þrír golfvellir í innan við 15 mín akstri frá Brekkuskógi og aðeins um 20 mín. akstur á Laugarvatn.

Fallegur bústaður á vinsælu svæði, í aðeins um klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginn, þar sem njóta má margvíslegrar afþreyingar og fallegarar náttúru.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víðibrekka 11
Heitur pottur
Skoða eignina Víðibrekka 11
Víðibrekka 11
805 Selfoss
92.9 m2
Sumarhús
513
645 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Álftavatn 13
Heitur pottur
Skoða eignina Álftavatn 13
Álftavatn 13
805 Selfoss
97 m2
Sumarhús
524
772 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 4
Á einni hæð
Skoða eignina Heiðarbraut 4
Heiðarbraut 4
805 Selfoss
80.4 m2
Sumarhús
624
558 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarbraut 7
Á einni hæð
Skoða eignina Bjarkarbraut 7
Bjarkarbraut 7
805 Selfoss
74 m2
Sumarhús
413
472 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin