Viltu fasteignir kynna Hafnarbraut 12C, 200 Kópavogur (Kársnes) Falleg, björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð ásamt stæði í lokaðir í bílageymslu. Svalir bæði til suðurs og norðurs. Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu, tvennar svalir og stæði í bílageymslu með möguleika á rafbílahleðslu.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum eignarinnar.
Einni er hægt að vakta eignina og gera tilboð í hana
Eignin er skráð 120,9 m2 / Fasteignamat 2026 - 94.050.000 kr.
Nánari lýsing:
Forstofa: Frá sameign er gengið í góða forstofu með tvöföldum fataskáp. Flísar á gólfi
Stofa/borðstofa: Í rúmgóðu, opnu og björtu rými og með harðparket á gólfi. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir íbúðarinnar.
Eldhús: Eldhúsið er með L-laga innréttingu og tækjavegg. Ofn í vinnuhæð, innbygður ísskápur og upþvottvél. Að stofu er skagi sem hægt er að sitja við. Harðparket á gólfi. Frá eldhúsi eru svalir til norðurs, fullkomnar fyrir grillið.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð innrétting, "labb-inn" sturta, og upphengt klósett og handklæðaofn.
Hjónaherbergi : Mjög rúmgott og bjart með parket á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Svefnherbergi I: Rúmgott og bjart herbergi með harðparket á gólfi og fataskáp
Svefnherbergi II: Bjart og gott herbergi með harðparketi á gólfi. Fataskápur
Þvottahús: Flísar á gólfi. Góð innrétting með geymsluplássi og plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Ræstivaskur.
Svalir: Út frá stofu eru góðar svalir til suðurs og frá eldhúsi eru "grillsvalir" til norðurs.
Geymsla: Í sameign í kjallara er rúmgóð geymsla.
Stæði bílageymslu: Í bílageymslu í kjallara er sér bílastæði fylgir íbúðinni og gert ráð fyrir rafbílahleðslu.
Eignin er á frábærum stað vestast á Kársnesi þar sem stutt er í þjónustu, skóla/leikskóla og útvist!
Nánari upplýsingar veitur Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða heidrekur@viltu.is
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun 995.000 kr.
Allt innifalið. - Ekkert vesen
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
08/04/2021 | 59.600.000 kr. | 64.400.000 kr. | 120.9 m2 | 532.671 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
200 | 100.6 | 99,6 | ||
200 | 86.6 | 94,5 | ||
200 | 108.3 | 102,9 | ||
200 | 89.4 | 94,9 | ||
200 | 132.9 | 97,5 |