Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu Breiðumörk 13, 810 Hveragerði.
Um er að ræða tvær eignir á fyrstu hæð hússins, samtals 93,4m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Þar af er íbúðin/gistiheimilið 52,2 m² og verslunarhúsnæðið 41,2 m².
Í verslunarhúsnæðinu er í dag rekin hannyrðaversluninn Bobbý en þar er opið verslunarrými, salerni og eldhús.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og eldhús.
Sér inngangur er að báðum eignum og góð bílastæði.Sjá staðsetningu hér:Íbúðin:Komið er inn í flísalagða forstofu, þar er fatahengi.
Stofan er með gólfsíðum gluggum, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, þar er handlaug, salerni, sturta og handklæðaofn.
Svefnherbergið er parketlagt, þar er útgengi á timburverönd á baklóð.
Eldhús er með innréttingu, lítið helluborð, vaskur og pláss fyrir lítinn ísskáp.
Þvottaðstaða hefur verið í sameign hússins.
Húsið er steinsteyp, byggt árið 2002 og stendur við aðalgötu bæjarins.
Stærðin er 52,2 m².Verslunarhúsnæðið:Í dag er húsnæðinu skipt niður í tvö rými.
Komið er inn í flísalgt rými, þar eru gólfsíðir gluggar.
Fyrir innan er salerni, vinnuherbergi og eldhús.
Hvít innrétting er í eldhúsi og gluggar að baklóð.
Stærðin er 41,2 m².Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.