Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Margrétarhagi 2c íbúð 102 - Rúmgóð 4ra herbergja íbúð á neðri hæð með sér inngangi í nýlegu fjölbýli í Hagahverfi – stærð 116,8 m² Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofan er flísalögð og þar er tvöfaldur fataskápur með fataslá og hillum.
Eldhúsið er með harðparketi á gólfi og innrétting er úr plastlagðri struktur-eik. Bekkplötur eru úr formbeygðu harðplasti. Í eldhúsinu er eldunareyja með svörtu keramik-span helluborði. Innfelldur ísskápur og innfelld uppþvottavél fylgja með við sölu.
Stofan er í opnu rými með eldhúsinu og þar er harðparket á gólfi og útgangur á verönd. Veröndin er skv. teikningum 29,3 m² að stærð, steypt, með steyptum skjólveggjum og heitum potti. Hitalagnir eru í hluta verandar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og innréttingin úr plastlagðri struktur-eik. Vegghengt klósett, sturtuhorn með glerhurðum og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru þrjú. Harðparket er á gólfum og skápar eru í öllum herbergjum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,7 og 13,2 m².
Þvottahús er með flísum á gólfi og
innrétting úr plastlagðri struktur-eik. Innréttingin er rúmgóð, gott skápapláss og þar er einnig bekkur með skolvaska.
Geymslan er srkáð 7,5 m² að stærð, flísalögð og er hún staðsett við enda bílskúrs (sem fylgir efri hæðinni)
Annað- Nýtt (mars 2025) harðparket er á alrými og svefnherbergjum. Flísar eru á forstofu, baðherbergi/þvottahúsi.
- Innfelld led lýsing er í alrými og á gangi.
- Innihurðir eru úr plastlagðri struktur-eik.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni
- Hitalögn er í steyptri stétt við aðalinngang, í gönuleið að geymslu og á hluta verandar.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.