Fasteignaleitin
Skráð 14. apríl 2025
Deila eign
Deila

Hallgerðargata 13

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
1549.6 m2
Verð
Tilboð
Byggt 2021
Fasteignanúmer
46235
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
1
Til leigu frábært skrifstofuhúsnæði á 3. hæð í Sjávarborg, 105 Reykjavík, heil hæð alls um 1.549,6 m² með sameign. Einstakt útsýni er af öllum hæðum hússins. Laust strax.
Staðsetning er frábær, rétt við Borgartún og stutt frá miðbænum.


Húsnæðið er innréttað sem skrifstofuhúsnæði. Fjöldi lokaðra skrifstofuherbergja og fundarherbergja. Mögulegt er að gera breytingar á húnæðinu skv. nánara samkomulagi. 

Sérnotarými á 3. hæð eru 1.235,4 m², sameignarhlutdeild er 260,8 m² og geymslur í kjallara 53,7 m². Samtals telst hið leigða því vera um 1.549,6 m²
Einstakt útsýni er af hæðinni.

Ýmsir möguleikar eru á skiptingu rýmisins í opin vinnurými, lokaðar skrifstofur/fundaherbergi. Gert er ráð fyrir allt að 8 snyrtingum á hæðinni, þar af tvær fyrir fatlaða.
Möguleiki er á að aðgangsstýra lyftum fyrir hverja hæð í húsinu.

Inngangur í kjallara er bjartur og stór og virkar eins og aðalinngangur.
Í kjallara hússins eru hjólreiðageymslur og búningsaðstaða með sturtum. Úr bílageymslu í kjallara ganga svo tvær lyftur. Mikið er af bílastæðum í kjallara sem er samfelldur undir öllu hverfinu.

Húsið er hannað af heimsfrægum arkitektunum Schmitd Hammer Lassen ásamt VA arkitektum (hönnuðir Svarta demantsins í CPH og nýja Alþjóða glæpadómstólsins í Haag).

Hafðu samband við Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 861-0511, magnus@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Jöfur ehf.
http://www.jofur.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Korngarðar 2
Til leigu
Skoða eignina Korngarðar 2
Korngarðar 2
104 Reykjavík
1600 m2
Atvinnuhúsn.
20
Tilboð
Skoða eignina Bíldshöfði 20
Til leigu
Skoða eignina Bíldshöfði 20
Bíldshöfði 20
110 Reykjavík
1530 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Skoða eignina Bíldshöfði (LEIGA) 20
Bíldshöfði (LEIGA) 20
110 Reykjavík
1501 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin