Sælulíf í sveitinni í aðeins 5 mín akstursfjarlægð frá Selfossi.
Um er að ræða 6 eignalóðir, í Flóahreppi. Þrjár lóðanna eru 3,2ha að stærð en tvær eru 3,4að stærð.
Rafmagn, kalt vatn og ljósleiðari afhendast í lóðamörkum.Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi má byggja neðangreint:Innan hverrar lóðar má byggja lögbýli. Heimilt er að byggja tvö íbúðarhús ásamt bílskúr allt að 400m2 á einni eða tveimur hæðum. Auk þess má byggja minni hús, (t.d. Gestahús, vinnustofu eða geymslu) í tengslum við íbúðarhúsin.
Einnig er heimilt að byggja fjölnotahús til atvinnureksturs allt að 700m2.
Lóðarhöfum er skylt að halda lóðum sínum þrifalegum og forðast geymslu lausamuna til lengri tíma.
Á MANNAMÁLI: Þá er hér gríðarlega áhugavert kauptækifæri fyrir aðila sem vilja búa rétt utan við SELFOSS, á friðsælum og fallegum stað. Búa við alla þá þjónustu sem lögbýli njóta, svo sem sorphirðu, snjómokstur og tæming rotþróa.
Hér getur stórfjölskyldan komið sér upp sælureit, eða framtakssamir einstaklingar byggt og starfrækt atvinnurekstur eða bara átt sælureit í sveitinni.
Heimild fyrir heildarbyggingamagn upp á 1.500fm. (þar af 800 fm íbúðarhús og að auki 700 fm atvinnuhúsnæði/hesthús/gripahús.)
Staðsetning:c.a 6 km eða 6mín akstur frá bæjarmörkum í austurhluta Selfoss (BÓNUS). Keyrt er inn Langholtsafleggjara og eru lóðirnar c.a. 3 km inn þann veg (malbikaður vegur) og þar á hægri hönd. Fallegt og víðsýnt svæði, yfir flatlendi Flóans, og Ingólfsfjall í vesturátt.
(Sjá í myndum)
Verð lóða:Grímsskjól 1 – 3,4ha – 20mkr.
Grímsskjól 3 – 3,4ha – 20mkr.
Grímsskjól 2 – 3,2ha – 20mkr.
Grímsskjól 4 – 3,4ha – 20mkr.
Grímsskjól 6 – 3,4ha – 20mkr.
Grímsskjól 8 – 3,4ha – 20mkr.
Fyrir framtakssama einstaklinga – fjárfesta eða verktaka er áhugaverður kostur að kaupa allar lóðirnar í einum pakka og teikna heildstæðar og samhverfar byggingar á lóðirnar og búa til sannkallaðan „Lúxuspakka“ fyrir þá sem kjósa sveitalíf, í bæjarmörkum Selfoss og Flóahrepps.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar Guðmundsson lögg.fasteignasali í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.isErtu hugsa um að flytja í Flóahrepp?
SMELLTU ÞÁ HÉR