Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: glæsilegt og vandað, vel staðsett endaraðhús á tveimur hæðum í botnlangagötu við Þrastarás 42 í Hafnarfirði,Aldeilis frábært útsýni er úr eigninni og allar innréttingar sérsmíðaðar. Við hliðin á húsinu er óbyggt svæði og því kyrrðin og útsýni enn meira. Ath: Skipti mögulega á minni eign í hverfinu. Eignin skiptist þannig að efri hæð er 102,9 fm, neðri hæð 70,9 fm og bílskúr 28 fm alls 201,8 fm skv Fasteignaskrá.Nánari lýsing:Efri hæð:Forstofa með góðum fataskápum sem ná upp í loft, flísar á gólfi, falleg glerhurð sem skilur að forstofu og gang.
Stofa og eldhús flæða saman í bjart rými með aukinni lofthæð og innfelldri lýsingu.
Eldhús með sérmíðuðum innréttingum úr hnotu og glerflísum á milli skápa. Ofn í vinnuhæð ásamt örbylgjuofni. Stæði fyrir amerískan ísskáp.
Stór eldunareyja með gashelluborði og stórum háf. Mikið geymslurými í eyjunni sem og eldhúsinnréttingu. Granít á bekkjum.
Útgengt út á sólpall úr eldhúsi.Stofa, gegnheilt parket á gólfi. Útgengt út á flísalagðar útsýnissvalir út stofu.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi er virkilega fallegt með tvöföldum vask, grantít á bekkum, steyptum sturtuklefa og baði. Upphengt salerni og góð innrétting.
Neðri hæð:Breiður stigi á milli hæða teppalagður og með glerveggjum.
Sjónvarpshol með útgengt út á sólpall, möguleiki að breyta því í herbergi.
Tvö góð svefnherbergi, annað með skáp, parket á gólfi.
Glæsilegt baðherbergi með sturtu, innrétting og upphengt salerni. Lítið falið rými innaf baðherberginu sem í dag er nýtt sem vínkjallari.
Þvottaherbergi með útgengt út á pall, stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Hillur og skápar.
Bílskúr:Flísalagður með þriggja fasa rafmagni, geymslulofti, vask, heitt og kalt vatn.
Varmaskiptir fyrir vatn íbúðarinnar.
Sólpallar í kringum húsið með geymslu undir efsta pallinum.
Heitur pottur með nuddi frá Trefjum, stjórnstöð fyrir hann í þvottahúsi.
*Viðhaldslítill garður.
*Sérsmíðaðar innréttingar úr hnotu frá Grindinni.
*Hurðar sérsmíðaðar úr hnotu, aukin hæð er á hurðunum.
*Granít á bekkjum eldhúss og baðherbergja.
*Gólfefni gegnheilt parket (hnota) og flísar.
*Gluggar vandaðir úr viðhaldsgóðu efni.
*Hiti í plani og stéttum fyrir framan hús.
*Endahús í botnlangagötu*Húsið er steinað að utan á vandaðan máta. (viðhaldslétt)
*Einstakt útsýni*Lóð stærri en afmarkaður garður er í dag.
Glæsileg og vönduð eign í enda á botnlangagötu á þessum vinsæla og barnvæna stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla, leikskóla, fallegar göngu-og hjólaleiðir í fallegri nátturu í nágrenninu.
Nánari uppl gefur Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.