Fasteignaleitin
Skráð 27. feb. 2026

Snorrabraut 35

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
95.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
794.764 kr./m2
Fasteignamat
74.450.000 kr.
Brunabótamat
47.150.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2010390
Landnúmer
102982
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Raflagnir
Öryggi í töflu í sameign hafa verið endurnýjuð, ekki vitað hvenær eða hvað hefur verið gert í íbúð.
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta með Snorrabraut 35A. Annað ekki vitað.
Gluggar / Gler
Skipt um glugga 2013 þar sem þurfti og hljóðdempandi gler götumegin. Samhliða var húsið endursteinað og byggðar svalir.
Þak
Þakjárn og þakkantur endurnýjaður 2009.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
SA-svalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð á 2. hæð að Snorrabraut 35 í Reykjavík. Tekjumöguleikar, því í kjallara er um 11 m2 herbergi í útleigu með eldunaraðstöðu. Sameiginlegt salerni og sturta fyrir það er í sameign. Íbúðin er björt með gluggum bæði út í garð og út að Snorrabraut. Út frá svefnherbergi er rúmgóðar SA-svalir. Húsið er steinsteypt og hefur verið endursteinað. Einnig hefur þakjárn verið endurnýjað. Frábær staðsetning í hjarta miðbæjarins þar sem allt er til alls og göngufæri í Sundhöll Reykjavíkur og leik- og grunnskóla.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofuhol, tvær stofur, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stúdíórými og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 95,5 m2.



**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa 
er inn af mjög rúmgóðum teppalögðum stigagangi. Innan íbúðar er komið inn á stórt parketlagt hol. Innskot er fyrir yfirhafnir.
Herbergi er mjög stórt og með innfelldum viðarfataskápum. Parket á gólfi. Útgengi er út á steyptar SA-svalir.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi með op á milli, en hefur verið lokað með léttum vegg og er annað stofurýmið nýtt sem herbergi í dag. Hægt er að opna að nýju. Parket á gólfi. 
Eldhús er með retro innréttingu á tveimur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru flísar, sem og á gólfi. Ofn með helluborði og vifta fyrir ofan. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. 
Baðherbergi er með hvítri innréttingu. Veggfestur spegill með ljósi. Baðkar með sturtu. 
Geymsla/Herbergi í útleigu og er 10,7 m2. Gluggi með opnanlegu fagi. Innrétting með vaski á einum vegg. 
Geymsla er sér, staðsett í kjallara. Hún er 4,4 m2.
Þvottahús er einstaklega rúmgott, staðsett í sameign í kjallara. Hver með sínar vélar. Þvottasnúrur og skolvaskur. Í þvottahúsi er einnig sturtuklefi.
Salerni í sameign fyrir útleiguherbergin í kjallara.
Auka herbergi í sameign er í eigu allra. Það herbergi er í útleigu og fara tekjur þess inn í sjóð húsfélags.
Garður er í porti aftan við hús. Grasflötur, malarplan og trjágróður. Ekið inn frá Grettisgötu.
Hjólageymsla er í læstri geymslu úti í garði (undir svölum 1. hæðar).

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lindarbraut 10
Opið hús:19. apríl kl 13:00-13:30
IMG_8422.JPG
Skoða eignina Lindarbraut 10
Lindarbraut 10
170 Seltjarnarnes
116.7 m2
Fjölbýlishús
413
976 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 14 íb. 401
Suðurhella 14 íb. 401
221 Hafnarfjörður
122.6 m2
Fjölbýlishús
413
648 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 403
Strandgata 26 íb. 403
220 Hafnarfjörður
150.6 m2
Fjölbýlishús
312
1195 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 310
Strandgata 26 íb. 310
220 Hafnarfjörður
94.3 m2
Fjölbýlishús
312
1165 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin