Fasteignaleitin
Skráð 21. júlí 2026

Birkimelur .

EinbýlishúsVesturland/Borgarnes-311
189.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
501.056 kr./m2
Brunabótamat
90.400.000 kr.
Byggt 2006
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
228553822
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu Birkimel í Borgarbyggð. Einbýlishús með bílskúr. Húsið er 157,3 fm og bílskúr 32,1 fm. Samtals er eignin 189,4 fm og stendur á 2,6 hektara kjarri vaxinni eignarlóð.  Eignin er skráð sem einbýlishús á íbúðarhúsalóð þar má hafa lögheimili og njóta þar með allrar þjónustu sem sveitarfélagið býður upp á.   Húsið er timburhús frá Trésmiðjunni Akri Akranesi, byggt á steyptum sökkli, gólf er steinsteypt, klætt að utan með Steni klæðningu.  Vilyrði er fyrir byggingu á allt að 400 fm skemmu/vélageymslu á lóðinni samkvæmt samþykktu skipulagi.

** Bókið skoðun HÉR **

Nánari lýsing: 
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum skápum, steinteppi á gólfi. Þaðan inn í stórt og bjart opið rými með aukinni lofthæðEldhús er rúmgott, góð innrétting, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, stæði fyrir uppþvottavél, tveir gluggar og góður borðkrókur. Stofa og borðstofa liggja saman, og úr borðstofu er gengið út á sólpall sem snýr í vestur, þar er heitur pottur. Stórkostlegt útsýni og mikil fjallasýn m.a að Snæfellsjökli sem blasir við úr pottinum.  Úr eldhúsi er gengið inn í rúmgott þvotthús með innréttingu og stæði fyrir þvottavél, þurrkara og kæliskáp. Innaf þvottahúsi er snyrting með nettri innréttingu. Úr þvottahúsi er útgengi út á bílastæði. Innangengt er í bílskúr í gegnum þvottahús. Bílskúr er með epoxy á gólfi, rafdrifin bílskúrshurð. Húsið er kynnt með gólfhita með rafmagni og hitatúpu sem staðsett er í bílskúr.  Varmadæla sett 2025. 
Á svefnherbergisgangi eru 4 góð svefnherbergi öll með góðum fataskápum. Baðherbergi er með fallegri viðarinnréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu, á veggjum eru Fibo Trespo plötur og flísar á gólfi. Handklæðaofn. 
Á gólfum hússins er quickstep parket frá Harðviðarval og flísar.
 
Víðáttumikið útsýni til allra átta og rómuð náttúrufegurð. Birkimelur er staðsettur við Hítardalsveg, ca 20 mín akstur frá Borgarnesi, og þægilegri akstursfjarlægð frá Reykjavík og er landið umlukið margbrotnum náttúruperlum Borgafjarðar.  Einstakt tækifæri að búa við og njóta náttúru utan þéttbýlis. Um er að ræða vel byggt og fallegt fjölskylduhús á grónu eignarlandi með mikla möguleika af ýmsum toga.   

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is / 8994703 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Greniteigur 37
Bílskúr
Skoða eignina Greniteigur 37
Greniteigur 37
230 Reykjanesbær
172.6 m2
Raðhús
524
556 þ.kr./m2
96.000.000 kr.
Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Sæbólsbraut 27
200 Kópavogur
197.1 m2
Raðhús
624
791 þ.kr./m2
155.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Benijofar
SPÁNAREIGNIR - Benijofar
Spánn - Costa Blanca
186 m2
Einbýlishús
433
362 þ.kr./m2
67.400.000 kr.
Skoða eignina Rafnkelsstaðavegur 5
Bílskúr
Á einni hæð
Rafnkelsstaðavegur 5
250 Garður
193.1 m2
Einbýlishús
613
357 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin