Fasteignaleitin
Skráð 15. júní 2026

SPÁNAREIGNIR - Playa Flamenca

Tví/Þrí/FjórbýliÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
90 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
28.300.000 kr.
Fermetraverð
314.444 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
139120626
Landnúmer
0
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir og þaksvalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGOTT FJARKAHÚS Á VINSÆLUM STAÐ* *STÓR SUÐUR GARÐUR* *FRÁBÆRT VERÐ* *STUTT Á STRÖNDINA OG Í LA ZENIA BOULEVARD*


Þetta fjarkahús er staðsett á hinu vinsæla Playa Flamenca svæði og býður upp á frábært tækifæri fyrir þá sem vilja skapa sér draumaheimili á eftirsóttum stað. Húsið snýr í suður og nýtur því sólar allan daginn. Garðurinn er stór og býður upp á mikla möguleika. Eignin er í göngufæri við La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina, auk fjölbreytts úrvals verslana, veitingastaða, kaffihúsa og annarrar þjónustu.

Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869


Nánari lýsing:
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, eitt fullbúið baðherbergi og gestasalerni á neðri hæð. Úr fremra svefnherbergi er útgengt á einkasvalir og á þakinu er rúmgóð þakverönd sem býður upp á fjölmarga möguleika.

Neðri hæð:
Gengið er inn í bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda og notalega heild. Fyrir framan húsið er rúmgóð verönd og afgirtur garður. 

Efri hæð:
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Útgengi er út á svalir og þaðan er gengið upp á þaksvalir með fallegu útsýni.

Mikilvægt er að hafa í huga að eignin þarfnast gagngerra endurbóta og hefur kaupverðið verið sett með það í huga. Fyrir kaupendur sem eru tilbúnir að leggja í framkvæmdir býðst hér einstakt tækifæri til að umbreyta vel staðsettri eign í glæsilegt fjölskylduheimili, orlofseign eða fjárfestingarkost.

Eignir sem eru svona vel staðsettar og á stórum lóðum koma sjaldan á markað á þessu verði. Þessi eign er því sannarlega þess virði að skoða til að átta sig á þeim möguleikum sem hún hefur upp á að bjóða. 

Staðsetning:
Fjölmargir af bestu golfvöllum Costa Blanca svæðisins eru í næsta nágrenni, þar á meðal Las Ramblas, Campoamor, Villamartín, Vistabella og Las Colinas. Göngufæri er niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig, auk þess sem vinsæla verslunarmiðstöðin La Zenia Boulevard er í örstuttri fjarlægð. Alicante-flugvöllur er í um 50 mínútna akstursfjarlægð. Í nágrenninu er einnig mikið úrval veitingastaða, kaffihúsa og verslana sem auðvelt er að komast til gangandi.

Hér er um að ræða frábært tækifæri til að eignast vel staðsetta fasteign á hagstæðu verði á einu eftirsóttasta svæði Costa Blanca.

Verð 195.000 Evrur (ISK 28.300.000 - Gengi 1Evra=145ISK) + 9% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: suður garður, sér bílastæði, þakverönd, strönd, 
Svæði: Costa Blanca, La Zenia,

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kambsvegur 23
Skoða eignina Kambsvegur 23
Kambsvegur 23
104 Reykjavík
93.9 m2
Fjölbýlishús
312
808 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 63
Efsta hæð
Hlíðarhjalli 63
200 Kópavogur
82.9 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Skeggjagata 16
Skoða eignina Skeggjagata 16
Skeggjagata 16
105 Reykjavík
92.4 m2
Fjölbýlishús
312
832 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Nónhamar 4
Opið hús:23. júlí kl 12:00-12:15
Skoða eignina Nónhamar 4
Nónhamar 4
221 Hafnarfjörður
80 m2
Fjölbýlishús
312
856 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin