Fasteignasalan TORG kynnir:Vel skipulagða og björt tveggja herbergja íbúð á 9undu hæð í Austurbrún 2 með frábæru útsýni yfir borgina og Esju.
Íbúðin er skráð 47,6 fm. og skiptist í forstofu, eldhús, opið svefnrými, stofu, baðherbergi, yfirbyggðar svalir og geymslu.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, í síma 623-8889 og unnur@fstorg.isNÁNARI LÝSING:
Forstofa: Komið er inn í opið hol með aflokaðri geymslu.
Eldhús: Vönduð viðarinnrétting með Miele stáltækjum og granít borðplötu.
Borðstofa/stofa: Stofa er björt með stórum glugga til vesturs ásamt útgengi á svalir með frábæru útsýni. Svalir eru yfirbyggðar.
Herbergi: Opið svefnrými með fataskápum eftir heilum vegg. Gluggi til norðurs.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðinnréttingu undir vaski og upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi. Einnig er sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.
Húsið: Húsfélagið hefur útbúið leiguíbúð í rými sem áður var samkomusalur og hyggst leigja út til tekjuöflunar í húsfélagið. Tvennar lyftur eru í húsinu og mikið af bílastæðum við húsið.
Í húsinu er einnig starfandi húsvörður.
Vel skipulögð og björt eign á vinsælum stað í Reykjavík. Frábært útsýni úr öllum gluggum, bæði til norðurs og vesturs yfir borgina. Stutt er í sund og útivist í Laugardal og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, í síma 623-8889 og unnur@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.700.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.