Fasteignaleitin
Opið hús:07. ágúst kl 17:30-18:00
Skráð 5. ágúst 2025
Deila eign
Deila

Vættaborgir 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
83.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
836.124 kr./m2
Fasteignamat
61.200.000 kr.
Brunabótamat
45.000.000 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1997
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2233538
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
sagt í lagi
Raflagnir
sagt í lagi
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
endurnýjað
Þak
endurnýjað
Svalir
verönd
Upphitun
ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Komin tími á að pússa yfir parket. Innréttingar á baðherbergi og eldhúsi eru upprunalegar. 
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Frábær 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórri aflokaðri tilmburverönd sem snýr í suður. Eignin skiptist í: forstofu, rúmgóða stofu, eldhús, baðherbergi, sér þvottaherbergi, 2 góð svefnherbergi, geymslu og stóra timburverönd. Húsið hefur fengið mikið viðhald síðustu ár og er almennt í mjög góðu ástandi. Á bak við húsið er verslunarkjarnin Spöngin, einnig er í örstuttu göngufæri frá leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskólann Borgarholtsskóla. 

Nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar:

Gengið er upp að íbúðinni sem er fyrir miðju á jarðhæð hússins beint á jarðhæð frá bílaplani. 
Forstofa: Komið er inn um sérinngang inn í forstofu með flísum á gólfi og þreföldum fataskápa sem nær upp í loft. 
Stofa + borðstofa: Borðstofa og setustofa eru saman í opnu rými með viðarparketi á gólfi. Opið er að hluta yfir að eldhúsinu. Útgengt er út á stóra aflokaða timburverönd með skjólveggja sem snýr í suður. 
Eldhús: Eldhúsið er með innréttingu í vinkil með efri og neðri skápum. Flísar eru á gólfi. Gluggi er við borðkrók. 
Baðherbergi: Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfi og upp á miðjan vegg, þaðan taka ljósar flísar við upp í átt að lofti. Hvít eldri innrétting er undir vaski og við hlið spegils fyrir ofan vask. Baðkar er með sturtuaðstöðu og hengi. 
2 x svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með parketi á gólfi og góðum fataskápum. 
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi er innan íbúðar með flísum á gólfi og góðum hillum. 
Geymsla: sér geymsla fylgir íbúðinni í sameign.

2020 var farið í viðamiklar utanhússframkvæmdir:
Húsið var sprunguviðgert og málað. Suður og austurhlið voru endursteinuð og gert við aðra steiningu eins og þurfti. Sléttir fletir voru viðgerðir og málaðir. Skipt var um þá glugga sem þurfti og aðrir voru viðgerðir. Gluggar og svalahurðir voru málaðar. Þakjárn var yfirfarið og málað og skipt um timbur í þakkanti þar sem þurfti og málaður. Svalagólf voru flotuð og máluð, tröppur og stigagangur að framanverður lagfærð. Skipt um allar lofttúður á þakinu og loftstokkar hreinsaðir.

Staðsetning og nærumhverfi:
Grunnskólinn og leikskólinn eru við hliðina og beint fyrir aftan hús er Spöngin með allri sinni þjónustu, m.a.matvöruverslun. Hverfisskólinn er Borgaskóli.  Í hverfinu eru 3 leikskólar, en nærstur eru Hulduheimar, en það eru 12 leikskólar í Grafarvogi. Grafarvogslaug er staðsett í Dalhúsum, skíðalyftan í Grafarvogi er í Húsahverfi. Egilshöll er staðsett í Fossaleyni. Það sem einkennir hverfið er mikil nánd við náttúruna. Þar ber helst að nefna svæði eins og Gufunesið, Grafarvoginn og ánna Korpu. Hverfið markast einnig af langri og fallegri sjávarsíðu sem umlykur hverfið að stórum hluta.

Samantekt:
Góð staðsetning, stutt í helstu þjónustu og sérinngangur og sérpallur. 

Allar nánari uppýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/02/200818.560.000 kr.22.600.000 kr.83.6 m2270.334 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturhús 20
Skoða eignina Vesturhús 20
Vesturhús 20
112 Reykjavík
90.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
769 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Starengi 30
Opið hús:07. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Starengi 30
Starengi 30
112 Reykjavík
98.4 m2
Fjölbýlishús
413
710 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Klukkurimi 19
Opið hús:07. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Klukkurimi 19
Klukkurimi 19
112 Reykjavík
101.5 m2
Fjölbýlishús
513
689 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 3
Skoða eignina Vallengi 3
Vallengi 3
112 Reykjavík
91.5 m2
Fjölbýlishús
412
775 þ.kr./m2
70.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin