Fasteignaleitin
Opið hús:27. ágúst kl 12:00-12:20
Skráð 23. ágúst 2026

Sæbólsbraut 23

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
181.8 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
153.900.000 kr.
Fermetraverð
846.535 kr./m2
Fasteignamat
130.850.000 kr.
Brunabótamat
98.200.000 kr.
Mynd af Þórey Ólafsdóttir
Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignalisti
Byggt 1985
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2065529
Landnúmer
116174
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
endurbætt eftir þörfum
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
hitaveita og gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu einstaklega bjart og rúmgott sex herbergja endaraðhús með bílskúr við Sæbólsbraut 23 á Kársnesi í Kópavogi. Eignin stendur á skjólsælum og fjölskylduvænum stað og nýtur góðrar staðsetningar sem endahús með fallegu og sérlega vel nýttu útisvæði. Fallegur garður og samfelld timburverönd sem liggur umhverfis húsið til suðurs, vesturs og norðurs. Útisvæðin tengjast vel saman og bjóða upp á mismunandi dvalarsvæði eftir sólargangi og veðri. Veröndin er skjólgóð og afgirt að mestu með heitum potti og fallegum gróðri og skapar frábæra aðstöðu til útiveru og samveru.

Birt stærð eignarinnar er 181,8 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 22,7 fm.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu og eldhús í björtu og opnu rými, fjögur svefnherbergi auk sjónvarpshols/vinnurýmis sem nýta má sem fimmta svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is.

Nánari lýsing
Forstofa
með náttúrusteini á gólfi.
Gestasalerni með handlaug, upphengdu salerni og glugga, náttúrusteinn á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu og steinborðplötu, vönduðum tækjum og tengi fyrir uppþvottavél. Rúmgóður borðkrókur með föstum bekkjum, fallegur þakgluggi eða sólskáli. Harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í björtu og opnu alrými með eldhúsi. Harðparket á gólfi og útgengt á verönd og þaðan áfram út á hið rúmgóða og skjólgóða útisvæði.
Stigi á efri hæð er teppalagður. Fallegur þakgluggi sem gefur mikla birtu.
Sjónvarpshol/vinnurými er opið og bjart rými með aukinni lofthæð, rými sem nýta má sem fimmta svefnherbergið. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskáp, harðparketi á gólfi og útgengi á suðursvalir.
Barnaherbergi I með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi II með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi III með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi flísalagt að hluta með gólfhita, vandaðri innréttingu, walk-in sturtu og upphengdu salerni.
Þvottahús með innréttingu inn í bílskúr.
Bílskúr er 22,7 fm með hillum og flísum á gólfi, innangengt úr forstofu.

Garðurinn er skjólsæll og fallegur með gróðri og góðri tengingu við húsið. Á veröndinni er heitur pottur og góð aðstaða fyrir útihúsgögn, grill og samveru. Útisvæðið stækkar þannig í raunveruleg not eignarinnar yfir hlýrri mánuði ársins. Útisvæðið er án efa einn af helstu kostum eignarinnar. Þar nýtur staðsetning endaraðhússins sín sérstaklega vel, en timburverönd liggur umhverfis húsið til suðurs, vesturs og norðurs og tengjast svæðin saman í eina heild. Þannig skapast fjölbreytt dvalarsvæði þar sem hægt er að njóta útiveru á mismunandi tímum dags. 

Eigninni hefur verið vel við haldið. Meðal nýlegra framkvæmda samkvæmt upplýsingum seljenda er að skipt var um þakrennur að aftanverðu árið 2026 og gler í sólskála/eldhúsi var endurnýjað árið 2020.

Hér er um að ræða virkilega skemmtilega og vel skipulagða fjölskyldueign þar sem björt rými, góð herbergjaskipan og einstakt útisvæði endaraðhússins fara sérstaklega vel saman.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði, í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is.
 
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/12/202070.600.000 kr.95.000.000 kr.181.8 m2522.552 kr.
19/05/201643.250.000 kr.47.900.000 kr.181.8 m2263.476 kr.
04/12/201234.600.000 kr.46.862.000 kr.181.8 m2257.766 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kársnesbraut 83
Bílskúr
Opið hús:30. ágúst kl 15:00-15:20
Skoða eignina Kársnesbraut 83
Kársnesbraut 83
200 Kópavogur
177 m2
Hæð
524
650 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Búðagerði 5
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Búðagerði 5
Búðagerði 5
108 Reykjavík
163.9 m2
Fjölbýlishús
435
731 þ.kr./m2
119.800.000 kr.
Skoða eignina Grenimelur 47
Bílskúr
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
Skoða eignina Grenimelur 47
Grenimelur 47
107 Reykjavík
171.3 m2
Hæð
514
922 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Skoða eignina Gullsmári 1
IMG_7173.JPG
Skoða eignina Gullsmári 1
Gullsmári 1
201 Kópavogur
80.1 m2
Fjölbýlishús
312
898 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin