Fasteignaleitin
Skráð 22. ágúst 2025

Fok lífsstíls- og gjafavöruverslun

FyrirtækiVesturland/Borgarnes-310
103.9 m2
1 Herb.
Verð
Tilboð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
0000000
Landnúmer
0
Húsgerð
Fyrirtæki
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu lífsstíls- og gjafavöruverslunina FOK, sem rekin hefur verið í 7 ár.  Verslunin er mjög vel staðsett í verslunarmiðstöðinni Hyrnutorgi sem er miðsvæðis í Borganesi og viðkomustaður flestra íbúa og ferðamann sem eiga leið um Borganes.

Rýmið var mikið endurnýjað fyrir 6 árum og er einstaklega glæsilegt. Verslunin b
ýður upp á vandaðan fatnað fyrir dömur og herra, gott úrval af vandaðri gjafa- og hönnunarvöru frá þekktum framleiðendum, ásamt útivistarfatnaði og skóm. Verslunin er með samninga við góða birgja, bæði innanlands og erlendis, og rekur glæsilega heimasíðu ásamt netverslun. Verslunin hefur verið mjög virk á samfélagsmiðlum og hefur þar marga fylgjendur ásamt stórum og tryggum hópi viðskiptavina í raunheimum.

Húsnæðið er leiguhúnæði og er 103,9 fermetrar að stærð, það er bjart og rúmgott með mikilli lofthæð og góðri lýsingu. Í rýminu eru lausar innréttingar og afgeiðsluborð. Húsnæðið er í verslunarmiðstöðinni Hyrnutorgi þar sem boðið er upp á fjölbreytta þjónustu, t.d. matvöruverslun, íþróttavöruverslun, apótek, sjúkraþjálfara og fleira. Næg bílastæði eru fyrir utan.

Nánari lýsing húsnæðis:
Inngangur, það eru tveir inngangar í Hyrnutorgið, rúmgóður sameiginlegur gangur og tvær sameiginlegar snyrtingar
Verslun, rúmgott verslunarrými með mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum í tvær áttir. Parketdúkur er á gólfum, falleg lýsing og lausar innréttingar. Lokuð geymsla/lager, aðgengilegt úr stiga, er yfir starfsmannasvæði.
Starfsmannaaðstaða, snyrting og kaffistofa eru bakatil í versluninni. Kaffistofa er einnig nýtt sem lager.

Hér er um að ræða góðan rekstur með fjölda tryggra viðskiptavina sem hefur verið rekin í sama húsnæði í 7 ár og skapað sér gott orðspor og nokkra sérstöðu. 

Allar nánari upplýsingar varðandi reksturinn er að fá hjá Sigríði Kjartansdóttur, lögg. fasteignasala, í síma 570-4500 eða á netfanginu sigridur@fastmark.is

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignamarkaðurinn ehf
http://www.fastmark.is

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Egilsgata 19
Skoða eignina Egilsgata 19
Egilsgata 19
310 Borgarnes
145.6 m2
Fjölbýlishús
413
Fasteignamat 48.450.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Sólbakki 31
Skoða eignina Sólbakki 31
Sólbakki 31
310 Borgarnes
211.8 m2
Atvinnuhúsn.
378 þ.kr./m2
80.000.000 kr.
Skoða eignina Sólbakki 31
Skoða eignina Sólbakki 31
Sólbakki 31
310 Borgarnes
102.1 m2
Atvinnuhúsn.
392 þ.kr./m2
40.000.000 kr.
Skoða eignina Sólbakki 31
Skoða eignina Sólbakki 31
Sólbakki 31
310 Borgarnes
102.1 m2
Atvinnuhúsn.
392 þ.kr./m2
40.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin